Andvari - 01.01.1975, Síða 46
44
BERGSTEINN JÓNSSON
ANBVAM
hrekklausa fólk til staðar, sem tæplega eða hreint ekki mátti byggilegur teljast.
Alls stóð íslenzka byggðin þarna í sjö ár, og hefur einn landneminn, Guð-
brandur Erlendsson, lýst henni í ritgerð og bókarkorni. En eftirminnilegastar
eru lýsingar á ævintýri Islendinga þarna um slóðir í skáldsögunni Eiriki Hanssyni
og smásagnasafninu Vornætur á Elgsheiðum eftir Jóhann Magnús Bjarnason,
sem sjálfur ólst upp í Marklandi. Verður báðum þessum höfundum tíðrætt um,
hversu einstaklega heilnæmt loftslagið hafi verið í nýlendunni þarna. Má vera,
að þar endurspeglist einhver óljós söknuður þeirra eftir langa búsetu á sléttunum
í Rauðárdalnum og miðvesturríkjum Bandaríkjanna.
Vorið 1875 lá í augum uppi, að ekki yrði nýtt ísland fundið í Alaska. Þá
þótti flestum löndum í Wisconsin orðið aðkallandi að finna lönd til þess að
byggja, og fyrir landa í Ontario lá lífið á að komast til betri og lífvænlegri staða.
Munu fæstir íslendingar þar hafa mátt til þess hugsa að þurfa að eyða fleiri
vetrum við lítt eða ekki breytt ástand.
Meðal íslendinga, sem komið höfðu til Wisconsin árið 1873, voru bjónin
Guðbjörg Jónsdóttir og Gunnlaugur Pétursson frá Elákonarstöðum á Jökuldal.
Var hann í beinan karllegg kominn af bændum, sem mann fram af manni
höfðu búið á þeim bæ. Vorið 1875 höfðu þau hjón urn hálfs annars árs skeið
búið í norskri byggð í Iowa County í Wisconsin. En í maí það ár tóku þau
saman pjönkur sínar, og eftir þriggja vikna ferð í uxakerru um rúmlega 500
mílna leið námu þau staðar i Lyon County á bakka Yellow Medicine ár í
Minnesota, skammt norður af smábænum M'nneota. Settust þau þar að á
þjóðhátíðardag Bandaríkjamanna, rétturn 99 árum eftir birtingu sjálfstæðisyfir-
lýsingarinnar. Fleiri íslendingar settust að þarna í grenndinni þetta ár og hin
næstu; síðar einnig í Lincoln County, sem er vestar, og nokkrir staðnæmdust í
bæjunum Minneota og Marshall. Llm aldamótin 1900 var talið, að í þessum
sveitum og bæjum byggju um 800 íslendingar. Voru þeir þá óvíða betur meg-
andi, og hafði svo verið lengi allt frá upphafi byggðarinnar. í Minneota kom
um skeið út eina íslenzka blaðið, sem út hefur komið í Bandaríkjunum, Vínland
(1902— 1907); og urn árabil gaf Gunnar Björnsson þar út blaðið Minneota Mascot.
Eftir vetrarvistina í Kinmount hefur Sigtryggur Jónasson loks sannfærzt
um, að nýja íslands yrði trauðla að leita í Ontario. Láir honum sjálfsagt enginn,
þótt bonum fyndist ábyrgðarbaggi sinn þá þungur orðinn. Skrifaði hann heim
til Islands, gat um stundarerfiðleika íslendinga vestra, sem hann taldi þó
von bráðar hljóta að rætast úr; einnig minntist hann á atvinnu- og viðskipta-
kreppu í Vesturheimi, og bað hann heimamenn að fresta um sinn frekari
vesturflutningum. Fyrr en varði kæmu dagar og kæmu ráð. Er þessi skoðun