Andvari - 01.01.1975, Page 74
72
BJÖRN JÓNSSON
ANDVARl
ir kunna ekki hina réttu aSterð. Kornteg-
undir vóru alltof lítið reyndar. Þó eru
hér og þar blettir, sem hveiti, bygg og
baunir standa í blóma og lítur út fyrir að
verða fullþroska, og sýnir það, að þetta
getur vel þrifizt hér, þegar jörðin er vel
undirbúin. Líka hefir verið reynt að sá
til hörs og hamps, og lítur hvort tveggja
vel út, því jarðvegurinn er ótvílugt góður;
hvað grös og jurtir spretta fljótt, er ótrú-
legt, og hvar sem maður lítur á jörðina,
er auðséð hið aðdáanlega framleiðsluafl
hennar.
En hér eru þrír aðalókostir. Hinn fyrsti
er langur og kaldur vetur, en það er ekki
svo tilfinnanlegt, því tíðin er stillt og
snjórinn lítill og stórhríðar aldrei, og
hvernig sem á því stendur, finnst mér
kuldinn ekki nærri því þeim mun tilfinn-
anlegri en oft heima sem frostið var meira,
sem líka sést af því, að oft var unnið úti
dag cftir dag í 30-36 gráða frosti, og
menn kól ekki svo mikið sem á andliti,
en heima fannst mér varla úti verandi,
þegar frostið var orðið yfir 20 stig.
Annar ókosturinn er, [að] landið liggur
of lágt, einkum sumstaðar, svo í stórrign-
ingum verða vegir næstum ófærir, enda
aldrei góðir, og sumstaðar er sáðverki
hætta búin, en okkur vantar kraft til að
gjöra nægilega skurði og vegabætur svo
fljótt sem þarf, og tel ég því þann ókost
mikið verri en kuldann.
Þriðji ókosturinn eru flugur, sem koma
í júní og eru allan júlí. Bíta þær bæði
menn og gripi og eru býsna vondar. Ekki
er hitinn neitt tilfinnanlegur, sízt við vatn-
ið, því þar er oftast gola, en uppi í skógn-
um er nokkuð heitt stöku dag.
Yfirstjórn Canada hcfir lánað okkur
stórfé, svo alltaf hcfur verið útbýtt meðal
fólksins matvælum, netgarni og verkfær-
um, sem keypt hefur verið fyrir þá pen-
inga. Svo vóru 40 kýr keyptar í haust og
230 í sumar, og 30 eru ókomnar, en sem
allt er keypt fyrir stjórnarláns peninga
(meðalverð á kúnum var 35 dollars). Líka
hafa menn keypt fyrir sína eigin peninga,
svo eitthvað 600 nautgripir eru í nýlend-
unni, auk ungviða. Svona spretta kýrnar á
Nýja-íslandi!
Fólkið í nýlendunni er um 1200. Svo
cru býsna margir íslendingar í Manitoba
og víðar. Líka hafa rnargir úr nýlendunni
farið upp til Winnipeg að leita sér at-
vinnu, síðan vörðurinn var hafinn (hann
gjörði okkur óþolandi skaða).12a Kvenfólk-
inu gengur vel að fá vistir, karlmönnum
lakar, og eru sumir næstum alltaf vinnu-
lausir, en hinir hafa alltaf vinnu, því hér
er allt breytilegra en heima, og hver mað-
ur getur hér notið hæfilegleika sinna upp
á einhvern máta langtum fremur en heima.
Nafni minn Jósefsson13, sem fór með
mér í fyrra, vistaðist hjá bónda skammt
frá Winnipeg og hefur verið þar síðan og
hefur 137 dollars í kaup um árið og fæði og
þvott frítt. En Sigurgeir Þórfinnsson hefir
lítið í afgangi; hann hefur verið í Winni-
peg, síðan hann kom, en oft haft lítið að
gjöra.14 Gamli Asmundur hefur verið hast-
arlega óánægður með allt, lítið betri en
þegar búið var að jafna niður útsvörunum
hcima, en nú er hann farinn að spekj-
ast.15 Ásmundur Guðlögsson hefur verið
rólegur, enda líður honum allvel.10 Hálf-
dan stendur sig allvel,17 en Indriði frá
Idóli er alltaf í basli og verður víst
lengst.18 Ólafur Ólafsson hcfur legið
lengst af í vetur, en er nú dálítið korninn
til heilsu, þó hún sé veik, og líklega verð-
ur hann ekki langlífur, enda óskar hann
þess ekki, því hann er einstæðingur og
aumingi, en vel hefur hann verið mér,
eftir því sem hann gat.la Friðjón hefur
sett hér verzlun fyrir eigin reikning og er
í allgóðum efnum. Hann er nú að byggja
stórt og vandað timburhús. Það er líka