Andvari - 01.01.1975, Qupperneq 130
SVEINN BERGSVEINSSON:
Vinsældir og listgildi skáldskapar
Það getur verið sitthvað listgildi verks og vinsældir þess, og fer það eftir
ýmsu. Hér verður aðeins fjallað um skáldskap. Til að þrengja þetta víðtæka
efni enn meir, verður aðeins fjallað um eitt kvæði eftir hvorn þeirra vinsælu
íslenzku góðskálda, Jónas Hallgrímsson og Jón Thoroddsen. Og hafa bæði
kvæðin lengst af verið birt í íslenzkum skólaljóðum.
Ég hef oft tekið eftir því, þegar slík kvæði hafa fengið sinn stimpil, verið
sungin inn í hjörtu þjóðarinnar, að þau verða ekki nánar krufin til mergjar
af kennurum og fræðimönnum, jafnvel hlaðið á þau oflofi. Að ég tek Jónas
Hallgrímsson sem dæmi, stafar af því, að hann einn af frægustu góðskáldum
landsins fyrr og síðar stendur undir því. Ýmis kvæði Jóns Thoroddsens hafa
líka náð miklum vinsældum.
Jónas Hallgrímsson
Þrátt fyrir allt, sem skrifað hefur verið um ástarskáldið góða að verðleikum,
er ekki að dylja þess, að hann er einn af erfiðustu skáldum 19. aldar, ef út í
það fer að túlka hann og útskýra, segjum í skólurn. Ekki er heldur auðvelt
fyrir nemendur að skilja Einar Benediktsson eða Stephan G. Stephansson.
Jónas hefur að því leyti sérstöðu, að hann er þeirra elztur. Þá bætist við,
að hann réð ekki útgáfu kvæðasafns síns. Og bullið þeirra vinanna í Elöfn,
Jónasar, Konráðs og Gísla Thorarensens, var ekki ætlað til birtingar, þó að
Konráð og fleiri létu það koma fram. En þetta er eigi að síður hluti af Jónasi
Hallgrímssyni, bullið og „abstrakt kómíkin". Hann dó ungur, og ég held,
að við, sem kynntumst honum eftir heila öld eða meira, vildum ekki missa
þessi kvæði. Ég á t. d. bágra með að taka létt á bulli Matthíasar Jochums-
sonar en Jónasar. Mér finnst Jónas bulla, þegar bann vill bulla. En báðir eru
náttúrlega mikil skáld, þegar þeir taka á honum stóra sínum.
Aldrei má gleyma því, hvað Jónas er miklu eldri. Þótt þjóðskáldin síðar, sem
svo voru kölluð, yrtu vel, er Jónas fyrsti Islendingurinn, sem vinnur vitandi vits
að hreinsun tungunnar, að því að skapa henni nýjan orðaforða. Þetta og annað