Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1994, Page 154

Andvari - 01.01.1994, Page 154
152 GUNNAR STEFÁNSSON ANDVARI ust. Helgi dvelur við ævisöguatriðin og tínir til ýmislegt um persónulega hagi Þórbergs á Unuhúsárunum, en þeir voru býsna bágir. Þórbergur er að upplagi sérsinna, á bágt með að bjarga sér, eins og kallað er, flosnar upp úr námi, fellur illa inn í hóp. Auðvitað höfum við myndina af Þórbergi á þessum tíma frá honum sjálfum, aðallega frásögnum hans í íslenskum aðli og Ofvitanum. En þær eru samdar úr íronískri fjarlægð og engin sann- fræði þótt þær látist vera það. Til dæmis er gaman að því að Helgi dregur fram með tilstyrk dagbókarinnar að Þórbergur hitti í raunveruleikanum elskuna sína í Hrútafirði en gekk ekki framhjá eins og frægt er af Islensk- um aðli. Ýmislegt fleira um hagi Þórbergs rekur Helgi M. Sigurðsson, um fátækt hans, fræðastörf, áhuga hans á austrænni speki, hneigð til sósíalisma o. s. frv. Þórbergur stökk vissulega ekki alskapaður fram á sviðið. Hann las og kynnti sér margt, en hann varð að geta tileinkað sér efnið á sinn eigin pers- ónulega hátt. Og frumleiksgáfa hans var óvenjuleg, hins vegar er ekki að sjá að hann hafi lesið mikið skáldskap, ekki einu sinni á þessu mótunar- skeiði, að minnsta kosti kann Helgi fátt að segja af slíku. Persónuleg reynsla skiptir hér mestu. í ástamálum lendir Þórbergur í þrengingum (Sól- rúnarmálið) sem hann skrifar sig út úr með Bréfi til Láru. Þetta er eitt dæmi um það hvernig mikil listaverk spretta upp úr sárum þrautum og sál- arháska þótt slíks þurfi alls ekki að sjá beinan stað í verkinu sjálfu. Efnið upp úr dagbókum Þórbergs og öðrum heimildum er allvel fram sett hjá Helga og bókarkorn hans læsilegt þótt ekki sé hann sjálfur stílisti nema í meðallagi. Hins vegar hefði mátt gera þessu rækilegri skil úr því að af stað var farið og bíður það verk líklega annarra höfunda. Helgi virðist lítt heima í stílfræði, að minnsta kosti eru athuganir hans á stíl Þórbergs mjög yfirborðslegar. Hann er ekki heldur mjög fær í hugmyndasögu. Greinargerð um hugmyndir Þórbergs, hvort sem er í trúmálum eða stjórn- málum, er næsta ófullkomin. Nú er það auðvitað svo að Þórbergur var rit- höfundur en ekki heimspekingur. Sú blanda af andatrú, þjóðlegri hjátrú, austurlandaspeki og einhvers konar sósíalisma sem hann aðhylltist er býsna furðuleg. Raunar er þarna aðeins um að ræða öfgafullt dæmi um þá mót- sagnakenndu lífsskoðanasúpu sem Islendingar hafa löngum hámað í sig. Þarna er mjög forvitnilegt viðfangsefni á ferðinni, að athuga frumefnin í ritum Þórbergs á fyrsta skeiðinu sem ber blóma sinn með Bréfi til Láru. Síðasti kaflinn, um Bréfið sjálft, er alveg ófullnægjandi greining, fáeinar at- hugasemdir og ábendingar, drepið á samþjöppun, litríkt orðfæri o. s. frv. Um fyrirmyndir er nefnt að hér togist á áhrif frá Freud og Edgar Allan Poe. Ekki er minnst á Oscar Wilde, en sýnt hefur verið fram á að hinn frægi kafli, Morgunn hins efsta dags, er stældur eftir Wilde. - Lesa má þá furðulegu staðhæfingu hjá Helga (bls. 94) að fram að Lárubréfi hafi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.