Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2004, Side 64

Andvari - 01.01.2004, Side 64
62 BJÖRG EINARSDÓTTIR ANDVARI þetta blátt áfram afrek en telur að sannast hafi í þessum málflaumi „að magn og gæði þarf ekki alltaf að fylgjast að,“ hrekur síðan lið fyrir lið málflutning ræðumannsins, telur best að hætta hjali og styðja frambom- ar tillögur sem séu framkvæmanleg, hagkvæm og sanngjörn lausn á málefninu og lýsir yfir stuðningi sínum við frumvarpið. í efri deild var jafnlaunafrumvarpið upphaflega flutt, eins og fram hefur komið, og kom til fyrstu umræðu í deildinni síðla í október 1960. Við fyrstu umræðu tók Auður Auðuns til máls og áréttaði efnisinntak frumvarpsins um launajöfnuð kvenna og karla og að flestir muni vera sammála um að úrbóta sé þörf enda þótt menn geti greint á um leiðir til leiðréttingar. Auður vísar til kvennasamtaka, einkum KRFI og þrot- lauss starfs þess varðandi ósamræmi í launagreiðslum karla og kvenna. Hún telur að umsagna kvennasamtakanna verði óskað og kveðst muni bíða með að ræða frumvarpið frekar fyrr en í heilbrigðis- og félags- málanefnd sem hún eigi sæti í. Frumvarpið kom úr nefnd til annarrar umræðu í efri deild 24. mars 1961 og var þá mikil vinna að baki. Leit- að var umsagna aðila vinnumarkaðarins og er skemmst frá því að segja að öll samtök vinnuveitenda lýstu sig í sameiginlegu bréfi andvíg launajöfnunarfrumvarpinu svo og miðstjórn Alþýðusambands Islands (ASÍ). Meðmælt frumvarpinu voru konur á þingi ASI, kvennasamtök- in og launþegasamtök. Heilbrigðis- og félagsmálanefnd klofnaði í þrennt í málinu og var Auður Auðuns framsögumaður meirihlutans og lagði hann til að samþykkja frumvarpið óbreytt. Minnihluti nefndar- innar, tveir þingmenn, skilaði áliti hvor fyrir sig. Þegar kom að þriðju umræðu um frumvarpið í efri deild virtist enn margt ósagt. Allir lýsa sig samþykka launajöfnuði en aðeins ekki á þann hátt sem gert er ráð fyrir í frumvarpinu, flutningsmenn þess hafa svarað ýmsum framkomnum athugasemdum en dugir ekki til. Auður getur ekki á sér setið og segir: „Þeir eru nú orðnir margir og áhugasam- ir, fyrirsvarsmenn kvenna hér á þingi við þessar umræður, og virðist hafa komið nokkuð skyndilega yfir suma.“ Einn þingmaður stjórnar- andstöðunnar féll í þá freistni að rifja upp smalamennsku frá bernsku sinni þegar hann sætti sig við fjórða part úr köku í nesti, en nú ætti að fara að skammta sjötta part. Auður greip þetta á lofti og spurði hvort taka ætti þessa frásögn sem tillögu hans um breytingu á gildistíma launajafnaðarlaga úr sex árum í fjögur. Einn þingmanna gerði athuga- semd við málflutning Auðar er hún talaði fyrir málinu og hún svaraði þannig: „Eg stend við hvert orð af því, sem ég sagði í minni framsögu-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.