Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2004, Page 109

Andvari - 01.01.2004, Page 109
ANDVARI JÓN SIGURÐSSON Á 21. ÖLD 107 Páll Eggert bætir því við að Jón Sigurðsson hafi einmitt verið skrifari bisk- ups þegar hann sendi þessa álitsgerð frá sér, og fram kemur í bréfi frá bisk- upi að Jón átti þátt í að semja hana, jafnvel drýgsta þáttinn. Reikningskrafa Jóns á því sýnilega uppruna sinn í biskupsstofunni í Laugamesi, hvort sem hún hefur fæðst í kolli biskups eða skrifara hans. Það sýnir glöggt að fjár- krafa íslendinga á hendur rfkissjóði Dana var langt í frá bragð Jóns til að hafa áhrif á gang sjálfstæðisbaráttunnar; frá sjónarmiði 19. aldar Islendinga var hún nauðsynleg forsenda fyrir réttlátum fjárhagsskilnaði. í frumvarpinu sem ríkisstjóm Dana lagði fyrir þjóðfund íslendinga 1851 var vandamálið sniðgengið með því að halda „hinni lærðu skólamenntun“ á íslandi fyrir utan það svið sem íslendingar ættu að standa straum af. Einnig var hafður fyrirvari um hvemig kirkjumálefnum á Islandi yrði síðar skipt upp með lögum.35 Þannig var haldið opinni leið til að biskupsembætti Islendinga yrði framvegis á könnu Dana. í næstu tilraun var farin önnur leið. Fjárhags- nefndin 1861-62 tókst á við tvíþættan vanda sem kæmi upp þegar fjárhagur Danmerkur og íslands yrði aðskilinn. Annars vegar var fyrirsjáanlegur halli á fjárhag íslensks landsjóðs, yrði hann skilinn frá ríkissjóði Dana; talsmenn ástandskröfu í fjárhagsnefndinni, Oddgeir Stephensen og A.F. Tscheming, mátu hann um 17.000 rd. á ári að meðaltali. Hins vegar var talið nauðsynlegt að hækka laun og eftirlaun íslenskra embættismanna, launin um 5.000 rd. og eftirlaunin um 7.500, reiknuðu þeir. Þannig komust ástandskröfumenn að þeirri niðurstöðu að ríkissjóður yrði að greiða íslendingum 29.500 rd. fast framlag á ári. Þar að auki lögðu þeir til bráðabirgðaframlag, 12.500 rd. fyrstu tíu árin sem síðan færi lækkandi um 500 rd. á ári, og ætluðu það til að bæta samgöngur og opinberar byggingar í landinu, ennfremur til að „bæta úr og koma í veg fyrir hallæri sökum einkennilegs ásigkomulags landsins og merkilegra náttúruviðburða“.36 Oddgeir og Tscheming efuðust samt ekki um réttmæti endurgreiðslukröfunnar; til þess að mæta fyrirfram mótbárum þeirra sem teldu tillögur þeirra of háar sögðu þeir: „Kröfunum um endurgjald fyrir Skálholts- og Hólastóls-jarðir og tillag það á ári hverju, sem skólanum hefir verið ætlað, alls 10.800 rd„ verður að vorri hyggju varla neitað.“37 Þeir tveir nefndarmenn sem minnst vildu greiða úr ríkissjóði til Islands, Danirnir V.J. Bjerring og V.R. Nutzhorn, sögðust vera: eigi heldur fjarlagir því að stinga upp á, að Islandi verði veitt fast árlegt uppbótarfé, er samsvari vöxtunum af söluverði því, er fyrrum hefir runnið í ríkissjóðinn fyrir hinar ýmislegu seldu fasteignir og tíundir, m.m. á Islandi, er sumpart hafa verið eign krónunnar, en sumpart hafa verið lagðar til skólanna í Skálholti og á Hólum. Þegar menn ætla sér að láta Island sjálft bera kostnað þann, er skólamálefni landsins hafa í för með sér, án nokkurs tillags úr sjóði konungsríkisins, þá virðist einnig sanngjamt, að Iandið í hinu fasta árlega tillagi, er nú var nefnt, fái uppbót fyrir söluverð það, er
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.