Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2004, Page 115

Andvari - 01.01.2004, Page 115
ANDVARI JÓN SIGURÐSSON Á 21. ÖLD 113 Lesendur verða sjálfir að hafa fyrir því að skapa sér yfirsýn yfir efnið, og það getur verið þrautin þyngri. Frásagnarhátturinn knýr höfund sjaldan til að taka saman þræði, veita yfirsýn eða meta. í 15. kafla síðara bindisins, sem er rakinn hér á undan, var skilið við fjárhagsmálið á bls. 251. Það kemur ekki við sögu aftur fyrr en í 19. kafla, á bls. 323, þegar danska stjómin leggur frumvarp um fjárhagsaðskilnað landanna og framlag Dana til íslendinga fyrir Alþingi árið 1865. Síðan á það auðvitað eftir að skjóta upp kollinum í frásögninni uns það er útkljáð með stöðulögunum 1871 á bls. 438. Engin atriðisorðaskrá er í ritinu til að létta lesendum að leita uppi þræði sem þeir hafa misst niður. Það leiðir þannig á vissan hátt - og þó varla nauðsynlega - af framsetning- araðferð Guðjóns að hann gerir lítið að því að ganga á hólm við sagnfræði- leg álitamál og komast að niðurstöðu um þau. Eftir þjóðfundinn þegar „Jón Sigurðsson situr á löngum fundum með löndum sínum sem fylgja honum fast að málum þó að skoðanir þeirra kunni að vera nokkuð skiptar um baráttuað- ferðir“, þá eru helstu fréttir Guðjóns af fundunum þær að nú séu þeir allir „komnir á gúmmígalosjur utan yfir skóna sem nýfarið er að framleiða í Kaupmannahöfn.“56 Guðjón ræðir sjaldan við sagnfræðinga og vísar lítið til þeirra. Svo tekið sé dæmi af hinum ögrandi (og að mínum dómi hæpnu) ályktunum Guðmund- ar Hálfdanarsonar, sem ég hef gengið á hólm við hér á undan, þá þykist ég greina áhrif þeirra í bókinni. Guðjón vitnar þannig í uppörvunarorð Jóns í bréfi til Gísla Hjálmarssonar læknis í september 1851, þegar var að koma í ljós hvaða refsingum íslenskir embættismenn og embættismannaefni yrðu beitt fyrir andstöðu gegn frumvarpi ríkisstjómarinnar á þjóðfundi. Jón biður Gísla að heilsa nokkrum liðsmönnum sínum á Islandi sem hann hafi ekki tíma til að skrifa „og biðja þá ekki láta hugfallast heldur styrkjast, því ef við gjörum það, þá gengur eitthvað einhverntíma, en annars föllum við í sömu gryfjuna sem áður, og sem við sluppum við í sumar. Við getum seiglast ef við nennum því, og tekið okkur fram í mörgu, því við erum enda ekki undir frelsi búnir fyr en við höfum gengið nokkuð í gegnum.“57 Ur þessum knappa bakþanka Jóns gerir Guðjón furðumikið: Samkvæmt þessu er Jón Sigurðsson síður en svo viss um að íslendingar séu undir frelsið búnir. Hann gerir sér ljóst hversu skammt á veg landsmenn eru komnir í þjóð- félagslegu tilliti og atvinnumálum, hve lýðræðisleg hugsun þeirra, orðræða og vinnu- brögð eru nývöknuð og hópurinn fámennur enn sem lætur að sér kveða í sjálfstæðis- baráttunni. Stjómmálaþróunin í Danmörku og Evrópu allri vinnur nú líka gegn íslendingum. Jón Sigurðsson er kominn á þá skoðun að íslendingar verði að hljóta frekari eldskím í sjálfstæðisbaráttunni og treysta undirstöður samfélagsins áður en þeir séu færir um að höndla frelsið. Þetta eru athyglisverð ummæli með tilliti til baráttu hans sjálfs á næstu árum.58
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.