Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2004, Page 119

Andvari - 01.01.2004, Page 119
ANDVARI JÓN SIGURÐSSON Á 21. ÖLD 117 Ég þykist vita að frásögnin af þessari sérstöku ferð styðjist ekki við neina heimild. En hér verður eitthvað til hjálpar sem frásögnin af kveðjustund Jóns á Hrafnseyri nýtur ekki. Fyrst er það að atvikið er smáatriði í sögunni. Okkur er nokkum veginn sama hvemig þeir félagar ferðuðust til Hróarskeldu; það er bara svolítið skemmtilegt að sjá þá fyrir sér. Að sama skapi gerum við litl- ar kröfur um sannleiksgildi sögunnar. Svo hefðum við ekki getað sagt fyrir að þeir félagar hafi farið þessa leið með þessum hætti, en þykjumst vita að höfundur hafi fyrir sér heimildir um að einhvem veginn svona hafi menn farið að. Sviðsetningin felst í rauninni í því að færa almenna lýsingu yfir á einstaklingsbundna frásögn. Það voru einmitt sviðsetningar af því tagi sem mér þótti Þómnni Valdimarsdóttur takast best upp við í bók sinni um Snorra Bjömsson á Húsafelli, því sagnfræðiriti íslensku sem hefur beitt slíku mest og að mínum smekk af mestri list. Til dæmis notar hún lýsingu á kirkjunni þar sem söguhetjan var (sjálfsagt) skírð og skímarformúlu frá sögutímanum til að sviðsetja skím hennar.75 Hvort sem okkur finnst sagnfræðileg saga vera bókstaflega sönn eða ekki þá liggur styrkur hennar óneitanlega í þeirri íþrótt að skapa hugverk úr heimildum. Átökin við heimildimar, tregða þeirra til að segja og jafnvel alger þögn geta líka skapað líf og spennu í sagnfræði. Þá spennu skemmir höfundur ef hann er sífellt að koma inn í söguna og slá einhverju föstu um það sem lesendur vilja krefja heimildimar svars um. Þetta finnst mér Guðjón gera þegar hann klifar á því hvað Ingibjörg Einarsdóttir hafi verið óróleg, kvíðin, vonsvikin og örvæntingarfull að bíða heitmanns síns árin sem hún sat í fest- um, oftast án þess að hann hafi nokkra heimild um hugarástand hennar.76 Hér hefði örugglega mátt gera betur, og ein leiðin hefði verið að leyfa lesendum að taka þátt í að glíma við gátuna um sambandið á milli þeirra Jóns og Ingi- bjargar árin sem hún beið hans í Reykjavík, hvers vegna engin bréf á milli þeirra hafa varðveist, hvað stóð í þeim bréfum sem við hljótum að álykta að hafi verið fargað, hver fargaði þeim og hvenær. Höfundar sem vinna á landamærum sagnfræði og skáldskapar standa óhjá- kvæmilega frammi fyrir því viðfangsefni hvort, og þá hvemig, þeir eigi að segja lesendum sínum hvað þeir reisi á heimildum og hvað ekki. Bjöm Th. Bjömsson setti tilvísanir til heimilda á spássíur bókar sinnar, Haustskipa (1975), sem er þó fremur heimildaskáldsaga en sagnfræðirit. Þórunn Valdi- marsdóttir beitir afar fjölbreytilegum aðferðum til að sýna lesendum sínum hvar hún getur sér til, stundum í meginmáli: „Látum sem Hússpostilla Vídal- íns sé til í Höfn 1728.“ „Kannski fær Snorri að sigla með yfir í Hólmskaup- stað „Hvaða farangur ber hesturinn, hvað hangir í hnakkólinni, Snorri? Kæft kjöt eða önnur matvara til að gera skólavistina bærilegri? Einhverja landaura, gjaldgenga vöru, eða peninga hefurðu.“77 Annars staðar notar hún aftanmálsgreinar til að segja frá „skáldaleyfum" sínum.78
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.