Andvari - 01.01.1895, Page 13
XI
konu sína og börn fara úr borginni, fyrst til nnnar-
ar borgar á Alsey og skömmu síða-r til Kaupmanna-
hafnar. En sjálfur varð hann kyr eptir enn um
hrið og veitti herstjórninni alla þá aðstoð, er hann
var fær um í té að láta, og gætti reglu og hélt
stjórn uppi í borginni, unz hann sem nýkosinn þing-
maður Slésvíkinga varð að fara til Kaupmannahafn-
ar, til þess að sitja á ríkisþinginu, og átti hann eigi
eptir það apturkvæmt til Suðurborgar, með því að
Þjóðverjar tóku eyna fám dögum síðar og öll vörn
af hendi Dana var þrotin. Sem vita má, slógu Þjóð-
verjar þá eign sinni og umráðum á eyna og lýstu
alla danska embættismenn úr völdum. Á meðan á
skotliríðinni stóð á Suðurborg, hafði húseign Finsens
og aðrar eignir orðið fyrir miklum skemmdum og
yfirhöfuð beið hann mikið efnatjón i ófriðnum á
ýmsan hátt.
Eptir að hann fluttist frá Suðurborg bjó hanti.
fyrst missiristima með fólki sínu í Ivaupmannahöfn,.
en veturinn næsta 1864—65 átti hann heimili í Jæg-
ersborg skammt þaðan og naut þá biðlauna. Þá
var Heltzen orðinn dómsmálaráðherra f Danmörku
og stóð fyrir íslands niálum. Hatði hann áður ver-
ið amtmaður í Slésvík og yfirboðari Hilmars Finsen;
sömuleiðis hafði bann þá verið keppinautur hans.
um þingmennsku og haldið þar fram ihaldsstefnu,
en Finsen fylgt hinum frjálslvndari flokkuum, og
hafði Heltzen þar haft lægra hlut. Nú bauð hann
Hilmari Finseu stiftamtmannsembættið á Islandi, sem
laust hafði verið frá því er Trampe greifi fór héð-
an 1860. Þessu boði tók Finsen, og var embættið-
veitt honum 8. Maí 1865. Tók hann þegar að nema
islenzku, sem hann þá alls eigi kunni, hjá frænda
sínum Steingrími kennara Thorsteinsson, leysti af'