Andvari - 01.01.1895, Page 24
XXII
frá tímanum á undan stjórnarskránni: Almenn hegn-
ingarlög (1869); stöðulögin (1871); tilskipun um póst-
mál með tilheyrandi auglýsingu; tilsk. um bæjar-
stjórn í Reykjavík; tilsk. um sveitarstjórn (1872);
peningalög (1873). Stjórnarskráin 5. Jan. 1874. Til-
skip. um ábyrgð fyrir eldsvoða í Reykjavík (1874).
Frá tímanum eptir stjórnarskrána má nefna þessi
lög: launalög; um læknaskipun; vegalög; um bruna-
mál í Rvík; yfirsetukvennalög; sóttvarnarlög (öll
1875); um skipaströnd; um tilsjón með útfiutningum;
um stofnun læknaskóla; um toll á áfengi og tóbaki;
þingsköp alþingis (öll 1876); reglugjörð lærða skól-
ans; um kosningar til alþingis; um ábúðar og lausa-
fjárskatt; um húsaskatt; um tekjuskatt; um laun
sýslumanna og bæjarfógeta; um ýms atriði um fiskí-
veiðar á opnum skipum (öll 1877); skiptalög; um
lausafjártíund (1878); prestakallalög; eptirlaunalög
presta; ura safnaðarmál (öll 1880); víxillög (1881);
um borgun til hreppstjóra; landamerkjalög; um leys-
ing sóknarbands; um kosningarrétt kvenna; um um-
sjón og fjárhald kirkna (öll 1882).
Finsen var mjög áfram um, að sparlega væri
farið með fé landsins, tekjunum eigi öllum eytt ár-
lega, heldur um það hugsað, að safna töluverðum
viðlagasjóði þegar á fyrstu búskaparárum landsins
með sjálfsforræði, til þess að vextir af þeim sjóði
gætu bætt upp í skarðið, þegar lausa tillagið frá
Danmörku færi að þverra og félli niður. Þetta var
eigi alls kostar auðgjört, þar sem margar þarfir köll-
uðu að og svo fjöldamargt var ógjört, sem landinu
horfði til framfara en útheimti töluverð fjárframlög.
Þó heppnaðist þetta svo vel, að um þær mundir,
sem hann fór héðan, átti landið álitlegan viðlagasjóð,