Andvari - 01.01.1895, Page 41
11
iholt með sama nafni, sem síðar mun um getið. Vest-
an Jökulsár móti Stafafelli er bær, sem heitir Þóris-
dalur, þar bjó á 17. öld ofanverðri Þórður Þorkels-
son Vídalín; liann var ágætur læknir og náttúru-
fróður og ganga enn ýmsar skrítnar sagnir um hann
hér syðra. Næsta dag var eg um kyrrt á Papós
hjá hinum gestrisna og vinsæla verzlunarstjóra Egg-
erti Benediktssyni og fór þann dag út í Brunnhorn
til þess að skoða bergið þar. I fjallinu fyrir ofan
Papós er smágert basalt, en innar, bæði í Kastár-
dal og í Endalausadal, er stórgert liparít, líkt gran-
íti; í horninu fyrir utan kaupstaðinn er gabbró, þá
hergtegund fann Norðmaðurinn Amund Helland fyrst
þar 1881, áður hafði sú bergtegund ekki fundizt í
föstu fjalli á Islandi, en mola af gabbró fann Sveinn
Pálsson fyrstur á Breiðamerkursandi. í Brunnhorn-
inu eru þverhnýpt berg mjög hrikaleg öll úr gabbró
og stór björg af sömu bergtegund liggja fyrir neðan,
gabbróið er þétt og hart og mjög mismunandi að
gerð, smágert og stórgert og sumstaðar í því marg-
kvíslaðar æðar. Bergtegund þessi er vanalega talin
með hinum elztu bergmyndunum, en hér getur verið
að gabbróið sé yngra; á Suðureyjum hjá Skotlandi
hefir yngra gabbró fundizt undir svipuðum kring-
umstæðum eins og hér. A Ilornskerjum fyrir utan
nesið var allt krökt og grátt af sel, hver skrokkur-
inn við annan, en kútveltust allir niður, þegar við
komura nær, og teygðu svo hausana upp úr sjónum
til að forvitnast um ferðir okkar, eins og vani þeirra
er.
Frá Papós fórum við yfir Almannaskarð suður i
Nesin; skarðið er lágt, 535 fet, en af því sunnan
megin er hin fegursta útsjón, svo óvíða mun hér á
landi vera önnur eins af nokkrum fjallvegi. Næst