Búnaðarrit - 01.01.1902, Blaðsíða 100
92
þær, sem eg nú átti að búa við og starfa i, var eg kvadd-
ur til að ferðast austur i Árnessýslu til þess að leiðbeiua
þar á ýmsum stöðuin í meðferð mjólkur. Pyrst kom eg að
Hrepphólum til Sigurðar Jóussonar og dvaldi hjá honum í
2 daga. Þar var málnytupeningur 7 kýr og 80 ær, og
hjálpaði eg til við mjólkurmatseldiua. Mjólkin var skilin í
þyrilskilvindu undir eins og búið var að mjalta; rjóminn
var kældur og geymdur þar til hanu var strokkaður.
Því næst fór eg að Syðra-Seli og dvaldi þar í 7 daga.
Þar höfðu 5 bændur, i félagi, komið á fót mjólkurbúi; út-
vegað sór þyrilskilvinduua, strokk, rjómaílát og fleiri áhöld
til þess að framleiða smjör í sameiningu. Dags-mjólkin var
700 pd., og flutt til búsins tvisvar á dag, eftir mjaltirnar
og skilin uudir eins. Undanrenninguna og áirnar tóku fó-
lagsmenu heim til sín í tómu fötunum. Rjóminu var sýrð-
ur með áum, og strokkaður daginn eftir. Smjörhnoðunarvél
var ekki til, en smjörið hnoðað með smjörspöðuin, og látið
svo niður í ílát, er tóku 100 pd.
Frá Seli fór eg að Birtingaholti, og dvaldi þar hjá
Ágúst Helgasyni 1 dag. Síðan hélt eg til Reykjavíkur. —
Sigurður Sigurðsson var með mér á þossari ferð, sem túlk-
ur. Það, sem aðallega stakk í augun, á þessari ferð og
sem seinna hefir komið skýrara i ljós annarstaðar er fyrst
og fremst hin lólegu húsakyuni, og þá einkum kjallararnir,
sem notaðir eru fyrir mjólkurbúr, í slíkum húsum er oft-
ast mjög erfitt, ef eigi ómögulegt, að hafa hreint loft eða
næga birtu. Pyrir þá sök verður hreiusun og ræsting, svo
í lagi sé, ill möguleg, auk þess, sem bæði hreint loft og
góð birta gera það gagn að eyða gerlum og myglusvepp-
um. Annað er það, að bæjarhúsiu eru mjög reyksæl, en
það er mjög skaðlegt fyrir smjörverkunina, og gengur næst
hreinlætisvöntuninni. í þriðja lagi hættir mörgum til, sem
nota skilvindu, að skilja rjómaun of þykkan (8—9°/0), en
það liefir þau áhrif, að mjólkin skilst lakar, og úr þessum
þykka rjóma fæst þannig lagað smjör, sem eftir strokkuu-
ina líkist meir feiti en sinjöri. Þetta síðast talda getur nú