Búnaðarrit - 01.01.1902, Blaðsíða 160
152
ar, því loftið verður að vera þurt og hreint. Áþennan hátt
er hægt að flytja kjöt óskemt laugar leiðir. Áriðandi er þó,
að kjötið gæti selst bróðlega eftir að það kemur á laud, því
annars er því hætt við að skemmast fyr en kjöti, sem flutt
er ókælt, einkaulega ef veður er lieitt og saggasamt.
Á þennan hátt er sent, afarmikið af nautakjöti til Bret-
lands á ári hverju frá Bandaríkjunum og Canada. Þessi
aðferð hefir einnig verið reynd í Danmörku, við flutning á
sauðakjöti til Englands, og lánaðist mjög vel, en með því
að skip með kælivélum eru nokkuð dýrari, eu sjóleiðin svo
stutt, að kæling ekki er nauðsynleg, var hætt við það aftur.
3. Flutningur á freÖnu kjöti. Þegar vegurinn, sem kjötið
þarf að flytjast til markaðsins er svo langur, að hinar tvær
fyrnefudu aðferðir elcki er hœgt að nota, er kjötið fryst áð-
ur en það er sent á stað. Þegar búið er að slátra og kropp-
arnir orðnir kaldir, er látinn utan um þá til þess gjörður
þunnur strigi, til þess að verja þá fyrir óhreinindum. Því
næst eru kropparuir fluttir inn í rúm, sem áður er kælt með
frystivél, sem stendur í sambandi við slátrunarhúsið, þar,
sem er 13—15 stiga kuldi. Loftið í frystirúminu þarf að
vera þurt og hreint og því er ekki hægt að uota almenn
íshús. Loftið í þeim er mettað með vatnsguíú, sem kjötið
drekkur í sig, og hættir því mjög við að slepja þegar það
þiðuar aftur. Eftir að kropparnir eru orðnir gegufrosnir, er
þeim skipað um borð, og raðað í lestina, hverjum ofan á
annan. Þegar fluttir eru heilir farmar af frosnu
kjöti, þarf engar kælivélar í skipin, kuldinn í kjötinu er
nægur til þess að halda því freðnu i fleiri vikur. Kjötið er
geymt freðið þangað til það er selt til smásalauna.
Á þenuan hátt er alt kjöt, bæði sauða- og uautakjöt
flutt til Bretlands frá Ástralíu, Nýjasjálaudi og Suður-
Ameriku.
4. Saltaö kjöt. Þessi aðferð við flutning og geymslu á
kjöti er í seinni tíð sáralítið notuð nema hér á laudi. Salt-