Búnaðarrit - 01.01.1902, Blaðsíða 168
160
þá vel borgaða -samanborið við verð á útlendum smáhestum.
Að endingu liefi eg fylstu ástæðu til að álíta, að talsverður
hluti af þeim beztu íslenzku hestum, sem seldir liafa ver-
ið til Bretlands á seinni árum, hafi ekki verið borgaðir
bændum svo vel, saman borið við hina lélegri, sem rétt
hefði verið eftir þvi verði, sem gefið iiefir verið fyrir þá
þar, en tiltölulega mikill hluti af verzlunarhaguaði kaup-
manna og umboðsinanna eiumitt lagður á þá. Ramskakkari
verzlunaraÖferÖ mun erjitl aö benda á.
Eg hefi þegar drepið á, að hestar vorir hafi ýmsa galla
í augum útlendinga. Þessa galla verðum vór að laga, ef
vér viljum koma þeim í gott verð. Sórstaklega eru Eng-
leudingar og Skotar strangir með að fá hesiana eins og
þeir óska, en fái þeir það, horfa þeir heldur ekki í skild-
inginn. Þauuig er almennt, að enskir smáhestar, á stærð
við vora stærstu hesta, kosta mörg þúsnnd krónur, einkan-
lega kynbótadýr. Meðalverð á enskum bnlkunar-smáhestum
mun vera um 8(J0 kr. eða ef til vill nokkuð hærra.
Það, sem sérstaklega er að athuga við uppeldi og sölu
íslenzkra hesta, þegar að erlendi niarkaðurinn er liafður
fyrir augum, er það, sem hér segir:
1. Hestarnir eiga að vera einlitir; þó gjöra þess konar ein-
kenni, sem stjarna í enni eða sokkar á fótum, engan
skaða, einkanloga ef þau hafa fengið festu sem kyn-
ferðismerki. Skjóttir eða mislitir iiestar ættu ekki að
seljast til útlanda. Beztur litur er jarpur því næst
brúnn, rauður og bleikur, en verstur grár og hvítur.
2. Við byggingu er sérstaklega að athuga, að höfuðið sé
lítið og frítt, hálsinn Jangur, vel reistur og vel borinu,
lendin löng og sem beinust með hásettum og velbornum
sterti; fæturnir eiga að samsvara stærðinni og vera vel
settir og traustir; geðslagið á að vera gæft eu þó fjör-
ugt.
3. Hæðin á helzt að vera 9 kvartil til 9 kvartil og 3
þuml. Af þessari stærð höfum vér enn mjög fáa hesta
og getum þvi ekki gert þá kröfu gildandi, eu því meira