Búnaðarrit - 01.01.1938, Side 23
B Ú N A Ð A R R I T
17
plöntur. Einar lét sér ætið annt um trjárækt og hefir
ýmislegt ritað um það mál.
Margt fleira mætti nefna af ritgerðum Einars í Bún-
aðarritinu fyrir utan sjálfar starfsskýrslurnar, t. d.
um sandfok og sandgræðslu, ferðalýsingar (frá Norð-
Urbótnum, 1900, og Ferðaskýrsla til Hjaltlands og
Orkneyja 1910) o. fl.
Ársrit hins íslenzka garðyrkjufélags kom út á ár-
unum 1895—1901 og 1920—1934. I það skrifaði Einar
fjöldann allan af stuttum og leiðbeinandi ritgerðum.
Hin fyrsta mun hafa komið út 189(5, og síðan í öllum
úrgöngum ritsins, sem út hafa komið. Þessar stuttu
ug skýru bendingar munu hafa komið fjölda manna
uð notum, enda mikil þörf þess á meðan garðyrkjan
Aar á byrjunarstigi.
Frey, mánaðarrit um landbúnað, þjóðhagsfræði og
A’erzlun stofnaði Einar ásamt Guðjóni Guðmundssyni
og Magnúsi Einarssyni árið 1904. Gáfu þeir félagar
Frey út til 1908, en það ár lézt Guðjón, en Sigurður
Sigurðsson ráðunautur kom i hans stað. Einar var í
útgáfufélagi Freys til 191(5, þá seldi hann sinn hlut i
blaðinu.
í Frey skrifaði Einar fjölda greina um ýms bún-
aðarmál að ógleymdum garðyrkjuleiðbeiningunum.
Frevr var þá víðlesinn um land allt. Hefir því þetta
liaft mikla þýðingu.
Auk þeirra ritgerða, sem nú hefir verið getið, í
nefndum ritum, skril'aði E. H. margar ritgerðir í blöð.
Voru það helzt leiðbeinandi ritgerðir um garðyrkju.
Þá hefir hann og skrifað nokkrar ritgerðir í útlend
garðyrkjurit, þar á meðal í Dansk Havebrugs Leksi-
kon. Islandsk Havebrug.
Enn eru ótalin hin merkustu og veigamestu ritstörf
Einars, en það er útgáfa hans á garðyrkjubókum, en
þær eru þessar:
Hvannir, matjurtabók, Reykjavík, 1926, 288 bls.