Búnaðarrit - 01.01.1938, Page 59
B Ú N A Ð A R R I T
53
brigðu dýrin, en auk þessa koma fram sjúkdómsein-
kenni á þeim dýrum, sem fyrir voru, og dauðsföll koma
i'rarn að nýju einnig í þeim hóp. Eitthvað líkt þessu
hefir væntanlega skeð í Deildartungu, þar sem hvert
árið eftir annað eru keyptir að hópar af heilbrigðu fé
og því blandað saman við sjúka stofninn heima fyrir.
Á flestum þeim bæjum, þar sem veikin hefir komið,
hefir verið sett á meira og minna af lömbum, árið sem
sóttin geisaði mest, en með því er settur saman við féð,
sem er í afturbata, allverulegur hópur af mótstöðu-
lausu, lítið sýktu eða ósýktu fé, og gæti þetta orðið til
þess að meira hafi farizt af upphaflega stofninum en
ella hefði orðið.
I sambandi við þessar hugleiðingar um mótstöðu
fjárins verður ekki hjá því komizt að minnast á nokk-
ur tilfelli af mæðiveiki á háu stigi, sem virðist liafa
lmtnað. Hér verður að vísu að byggja nær eingöngu
á frásögnum einstakra bænda. Þegar liggja fyrir all-
mörg lilfelli af nokkurn veginn samhljóða vitnisburð-
um um einstakar kindur, sem í fyrra vor virtust komn-
ar að dauða, voru jafnvel mikið til hættar að éta eða
lagztar um sauðburðinn. Með hjúkrun og nálcvæmri
aðlilynningu tókst samt að fleyta þeim yfir burðinn.
Síðan ljrögguðust þær hægt og hægt í vor, og komu
fram í haust, sumar vel feitar með góða dilka.
Sumum af þessum ám var svo slátrað í haust og þá
fundust í lungum þeirra í staðinn fyrir hina þekktu,
grágulu, stökku, vökvafylltu skemmd hvítgrá, þurr og
hörð bandvefsþykkni í tilsvarandi hlutum lungans. Ég
hefi aðeins í fáum tilfellum haft tækifæri til þess að
skoða slík lungu sjálfur, en þar sem hér er um svo
greinilegan og afgerandi hlut að ræða og samhljóða
lýsingar koma frá fleiri stöðum, er ekki hægt að álíta
annað en rétt sé greint frá í aðalatriðum að minnsta
kosti, enda er hér um að ræða eitt það þekktasta fyrir-
brigði í sjúkdóms- og vefjafræðinni, að þegar skemmd