Búnaðarrit - 01.01.1938, Síða 170
162
B Ú N A Ð A R R I T
um bæði kvöld og morgna, og því varð vinnudagur-
inn oft 16—18 stunda langur.“
„Voru kýrnar ekki stirðar í snúningum og lélegar til
dráttar?“
„Fyrstu búskaparár mín notaði ég eingöngu kýr tit
dráttar, og einnig síðar, er ég ræktaði kartöflur í stærrl
stíl. Kýrnar mínar voru góðar dráttarkýr, það máttu
þær eiga, en ekki get ég neitað því, að ýmsum varð
starsýnt á mig, er ég kom til bæjarins með kú fyrir
vagni þeim, er ég flutti kartöflur mínar á til markaðs-
staðarins.
Stöku maður fór að dæmi mínu, og það kom fyrir,
að menn komu úr öðrum sveitum til að sjá og sannfær-
ast um, hvort hér væri maður með fullu ATiti eða ekki.“
„Hvað svo með málnyt kúnna, er þær voru dráttar-
kýr?“
„Þær gáfu meiri málnyt en annars.“
„Því trúa víst ekki margir, að minni hyggju.“
„Nei, ýmsir hafa vefengt orð mín, en það hreytir
ekki sannleikanum, og það geta nokkrir aðrir, sem
einnig hafa notað kýr til dráttar, vottað með mér, því
þeir fengu sömu reynslu. En hér er margt að athuga.
Það er ekkert vit í að ætla sér að nota þær til hvaða
dráttar sem vera skal, og hvernig sem aðstaðan er, en
smábýlingurinn hefir einmitt góð not af kúm sínum
á þennan hátt, ef hann velur þær hentugustu til þess
og misnotar þær ekki. Og auðvitað verða þær að sæta
góðri meðferð; ég fóðraði mínar kýr nær eingöngu
með korni, og þær mjólkuðu vel.“
„En þegar þér bættuð við land yðar, voru kýrnar þá
fullnægjandi?"
„Nei, þá keypti ég hesta, það var nauðsynlegt, og er
nauðsynlegt annarsstaðar en á allra minnstu býlunuim
Nú hefi ég 2 hesta og 6 kýr, en annars notuin við smá-
bændur sem aðrir vélarnar og rafaflið meira og meira
eftir því sem við verður komið.“