Búnaðarrit - 01.01.1938, Side 252
244
B Ú N A Ð A R RI T
ö. gr. Nú álíta skoðunarmenn félagsmann óbirgan
með hey, og ráðleggja honum því að lóga nolckru af
skepnunum. Ber þeim þá að vera i ráðum með hon-
um um, hverjum skepnum helzt skal lóga, og þá eink-
um þeim, er honum er ótilfinnanlegast að missa, að
öllum kringumstæðum hans vel athuguðum. Vilji hlut-
aðeigandi félagsmaður eigi fara að ráðum skoðunar-
manna, getur hann eigi vænst hjálpar þótt í heyskorti
lendi hjá búnaðarfélagsmönnum, nema því aðeins, að
öllum þeim, er farið hafa að ráðum skoðunarmanna,
sé fyrst borgið.
10. gr. Á báðum skoðunarferðum sínum skulu skoð-
unarmenn sérstaklega hafa hugfast, að aðgæta kláða
og lús í sauðfé, og ef vottur kynni til þess að finnast,
að áminna menn ítarlega um, að ráða bót á því með
íburði. Yfir höfuð eiga þeir að áminna um allt, sem
betur má fara viðvíkjandi skepnuhirðingu. En slikar
áminningar skulu ávallt gerðar með hógværð og af
bróðurhuga. —-------“
Árið 1888 tók félagið til meðferðar málaleitun frá
Hannesi Blöndal verzlunarmanni um, að stofnað yrði
gripaábyrgðarfélag fyrir alla sýsluna. Var málið ítar-
lega rætt, og öllum búnaðarfélögum sýslunnar skrifað
um það, og óskað eftir sameiginlegum búnaðarmála-
fundi, er semdi frumvarp til félagslaga, er svo skyldi
leggjast fyrir sýslufund. Vegna vantandi þátttöku dag-
aði málið uppi.
Félagið lét mæla og taka út allar jarðabætur. Voru
verðlaun veitt fyrir bezt unnar jarðabætur úr félags-
sjóði. Voru verðlaunin þrenn: 20, 15 og 5 lcrónur á
150 dagsv. og yfir.
Þá gekkst og búnaðarfélagið fyrir stofnun bindind-
isfélags i sveitinni, og starfaði það um nokkurra ára
skeið.
Skömmu eftir stofnun .búnaðarfélagsins var hafizt
handa að gefa út sveitarblað. Var það látið ganga um