Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Page 30

Uppeldi og menntun - 01.01.2006, Page 30
30 5 Ekki er ástæða hér til að rekja sögu tilfinningagreindarhugtaksins hjá fyrirrennurum Golemans. Það er ljóst að sá skilningur sem lagður er í hugtakið í L er runninn frá Goleman og hinni sögu- frægu sjálfshjálparbók hans (1995). skilja orð mín svo að ég amist við því að félagsþroska- og tilfinninganám sé gert að leiðarstefi lífsleiknikennslu heldur beri fortakslaust að skipuleggja hana sem dygða- kennslu í anda skapgerðarmótunar. Ég kannast fúslega við að mörg rit um skapgerð- armótun (t.d. Lickona, 1991) gera tilfinningadygðum ekki nógu hátt undir höfði en einblína á athafnadygðir. Minnumst þess hins vegar að hugmyndirnar að baki jafnt til- finningagreind sem skapgerðarmótun eru upphaflega runnar undan rifjum aristótel- esar. Besta leiðin til að skýra hvað ég á við með því að tilfinningagreindina skorti siðferðilega dýpt er að bera kenningu aristótelesar um tilfinningadygðir saman við kenningu Golemans um tilfinningagreind (sem að miklu leyti endurspeglast í L). Ég vona að með því takist mér að vekja lesendum hugboð um hvernig hugsanlega væri hægt að skipuleggja félagsþroska- og tilfinninganám af því tagi sem L á að leggja grunn að þannig að jafnt sálræn sem siðferðileg markmið fái að njóta sín. tilfinninGaGrEinD­ EЭa tilfinninGaD­yGЭir Samkvæmt kenningu aristótelesar mynda tilfinningar okkar varanlegar og stöðugar skapgerðarhneigðir sem geta, eins og aðrar slíkar hneigðir, verið lofsverðar (dygðug- ar) eða lastverðar (ódygðugar). Tilfinningaþroski og siðferðisþroski eru þannig óað- skiljanleg ferli; það er tómt mál að tala um „tilfinningagreindan“ mann sem ekki er um leið dygðugur eða dygðugan mann sem ekki hefur fengið vel útilátið af „tilfinn- ingagreind“. Þessi kenning tekur á sig ýmsar myndir sem ekki koma allar heim og saman við skilning Golemans á tilfinningagreind,5 jafnvel þótt yfirlýst markmið hans sé ekki annað en það að jarð- og aðgerðabinda kenningu aristótelesar. v­ið sjáum þetta best með því að bera skipulega saman nokkra lykilþætti kenninganna (sjá nánar hjá Kristjáni Kristjánssyni, 2006b). Áhersla Erlu, Jóhanns Inga og Sæmundar er því miður oftar Golemans megin þó að það sé að vísu ekki algilt, eins og við komust að raun um hér á eftir. Tafla 1. Samanbur­ður­ á hug­mynd­um Golemans­ um tilfinning­ag­r­eind­ og­ Ar­is­tóteles­ar­ um tilfinning­ad­yg­ðir­ Tilfinningagreind Tilfinningadygðir a) Sálrænt svið Skapgerð Tilteknar skapgerðarhneigðir b) Alm­ennt lífsm­arkm­ið Árangur Farsæld c) Einkennandi hugsunarháttur Klókindi Siðvit d) Mælikvarði á árangur Sálrænn og huglægur Siðferðilegur og hlutlægur e) Gildissvið Jákvæðar tilfinningar Jákvæðar og neikvæðar tilfinningar f) Áhrif á sjálfið Sjálfsþekking, jákvæð Sjálfsvirðing sjálfsímynd og sjálfsagi g) Viðhorf til ágreinings Lausn ágreinings Hin rétta lausn ágreinings h) Lokam­ark tilfinningaþroska Tilfinningalegt jafnvægi Tilfinningaleg virkni og þróttur og jafnaðargeð L Í FS LE IKn I oG T I L F InnInGAGRE InD
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.