Búnaðarrit - 01.01.1992, Síða 75
þar ekki. Félagsmenn í Borgarfirði bíða átekta, hvað út úr vinnu okkar
Þorvaldar Árnasonar kemur um ágæti árlegra mælinga, sem okkur sýnist,
að hafi ekki gildi sem ræktunargagn, þótt ýmsar upplýsingar gefi, sem gagn
getur verið að. Útreikningar sýna, miðað við efnivið mælinga, sem við nú
höfum, að vandalaust sé að reikna „eðlilega“ stærð og þunga hvers trippis,
miðað við aldur þess. Til að fylgjast með þroskanum og ástandi trippanna á
hverjum tíma geta mælingar verið góðum búmanni nauðsynlegar til styrktar
því, sem glöggt auga sér.
Fjalla-Blesafélaga heimsóttum við Jón Vilmundarson 22. apríl, skoðuð-
um hross og sátum aðalfund. Geðþekkur foli er vaxinn upp hjá félags-
manni, fínlegur og vel gerður og efnisreiðhestur. Var hann, Máni frá
Raufarfelli, sýndur hóflega taminn á fjórðungsmóti í sumar í hópi 4ra vetra
stóðhesta og fékk þessar einkunnir: sköpulag 8,33, hæfileika 7,43, aðalein-
kunn 7,88. Þrátt fyrir það, að nú er hætt að veita framlag til félagsins sem
annarra slíkra, eru félagarnir áhugasamir og óska eftir áframhaldandi
samstarfi við ráðunauta. Er óskandi, að meiri skriður komi á hrossaræktar-
skútu þeirra. Þarna eru dugnaðarmenn, sem þekkja og skilja ræktun búfjár
og hafa náð langt í öðrum greinum. Fer röðin þá ekki að koma að
hrossunum?
Kleifahross blunda unt of þrátt fyrir mikla framför á stóðhesti þeirra,
Sviðari frá Heinabergi, er hlaut I. einkunn á árinu. Nú er að duga eða
drepast, vil ég meina, í vor er síðasti frestur fyrir búið að sýna af sér lit og
helst miklu meira, því að af nógu góðu er að taka og fjórðungsmót
framundan.
Ársþing L.H. var haldið í Kópavogi, ég var fjarverandi.
Hrossadómar og sýningar. Fjórðungsmót var haldið á Gaddstaðaflötum í
júlí. Það varmeðslíkum glæsibrag, aðenginn jöfnuðurfinnst, segja margir.
Hjálpaðist allt að, undirbúningur og stjórnendur, nýendurbættur mótsstað-
ur, veðrátta, kynbótasýningar og keppnishross, knapar og góðir gestir.
Árangur var eftir því. Meira að segja er loksins komið stórt og gott vinnuhús
fyrir kynbótadómara, sem þakkað er fyrir, og hér með „orða víkur rosti“,
einsog Jón í Skollagróf kvað í vísu um undirritaðan. Að vanda verður næsta
hefti af Hrossaræktinni yfirhlaöið af upplýsingum um þetta glæsilega og
eftirminnilega fjórðungsmót, og vísast á það.
Við dæmdum hrossin víða um land. Alls fóru í það starf 52 dagsverk, og
dómar féllu um full 1400 hross. Dagana 8.-10. maí fórum við Kristinn
Hugason og Jón Vilmundarson til dómstarfa á vegum íslenskra hesta-
manna, búsettra í Þýskalandi, þangað og felldum dóma unt 20 hross vegna
samkeppni kynbótahrossa þar (fædd á íslandi) við hross héðan að heiman
um þátttöku. Reyndust hross þessi, sum hver, mjög góð.
Oft vorum við Kristinn saman við dómstörf, en í nokkur skipti án hins.
Kristinn tíundar sína staði fyrir norðan, en ég var með öðrum góðum,
73