Búnaðarrit - 01.01.1992, Page 84
ráðstefnu um hrossarækt og hrossahald, sem halda á hér á landi í ágústmán-
uði árið 1993. Ráðstefnan verður haldin á vegum Búnaðarfélags Islands og
Rannsóknastofnunar landbúnaðarins, en í samvinnu við Hrossadeild Bú-
fjárræktarsambands Evrópu (EAAP).
Landssamband hestamannafélaga hélt ársþing sitt í Kópavogi, 25. og 26.
október, og sat ég þingið. í kynbótanefnd þingsins voru samþykktar tillögur
um, að Hrossaræktin komi fyrr út en verið hefur, og stuðningi var lýst yfir
við bókun Hrossaræktarnefndar þess efnis, að tilraun verði gerð með
sjálfstæða einkunnagjöf (ekki spjaldadómar) kynbótadómara hrossa.
Hrossaræktarsamband íslands hélt aðalfund sinn í Hornafirði, 9. nóvem-
ber. Fundarstörf voru með hefðbundnu sniði, og gafst mér góður tími til að
flytja skýrslu okkar hrossaræktarráöunauta um starfið frá síðasta aðalfundi.
Ágæt þátttaka var í málefnalegum umræðum.
Félag hrossabænda hélt aðalfund sinn í Bændahöllinni, 15. nóvember.
Ymsar samþykktir, tengdar starfsemi Búnaðarfélags íslands í hrossarækt,
voru gerðar, og verður hér getið þeirra helstu. Samþykktar voru tillögur um
endurskoðun á lágmarksverði útfluttra kynbótahrossa, um lækkun
greiðsluhlutfalls í Stofnverndarsjóð og um endurskoðun laga og reglugerða
um sjóðinn. Samþykkt var, að útgáfa Hrossarœktarinnar „verði færð í betra
horf“ og bókin komi út um áramót. Stuðningi var lýst yfir við sömu bókun
Hrossaræktarnefndar og LH-þingiö gerði og hliðstæð tillaga og þingsins um
málsmeðferð var samþykkt. Þá var samþykkt áskorun um, að gefinn verði
kostur á íslenskum kynbótadómum erlendis, svo að dómar hrossa frá
innlendum ræktendum, sem flutt hafa verið úr landi, nýtist við útreikning
kynbótamats. Þá lýsti aðalfundurinn yfir trausti á störfum Þorvaldar
Árnasonar fyrir íslenska hrossarækt og tók með orðalagi samþykktarinnar
undir þá stefnumótun, sem Búnaðarfélag íslands hefur frá upphafi liaft í
sambandi við túlkun niðurstaðna, hvort sem er af kynbótasýningum eða á
kynbótaspám. Því miður varð ekki hjá því komist fyrir mig á þessum fundi,
eins og ég veit, að lesendur starfsskýrslu þessarar skilja, að halda uppi
nokkuð hörðum málflutningi gagnvart Halldóri Gunnarssyni, sitjandi
formanni Félags hrossabænda. Að lokum er full ástæða til að benda á, því
að það segir töluvert um jákvæðan hug hins almenna fulltrúa á aðalfundin-
um til Búnaðarfélagsins, að ekki var samþykkt tillaga frá stjórn Félags
hrossabænda þess efnis, að náð yrði fram endurskoðun á lögum, „sem
tryggi sjálfstæðari stöðu búgreina".
Á árinu mætti ég á og hélt erindi á sex almennum fræðslufundum með
hestafólki víða um land.
Hrossarœktarnefnd Búnaðarfélags íslands. Ég er varaformaður Hrossa-
ræktarnefndar samkvæmt skipun stjórnar Búnaðarfélagsins, auk þess að
vera ritari nefndarinnar. Nefndin hélt tvo fundi á árinu, 29. apríl og 17.
desember.
82