Búnaðarrit - 01.01.1992, Page 98
Kanínurækt
Ingimar Sveinsson
Ég hefi, eins og undanfarin ár starfað í
hlutastarfi sem kanínuræktarráðunautur.
Staðan í sölu og markaðsmálum kanínu-
fiðu hefir valdið því, að kanínurækt hefir
dregist saman. Er það skiljanlegt, þar sem
Fínullhf. hefir ekki greitt bændum fyrir neina
fiðu á árinu.
Ég sat aðalfund Fínullar og nokkra stjórn-
arfundi, einnig aðalfund L.A.S.K. (Landss-
ambands kanínubænda) og nokkra fundi
með stjórn og fulltrúaráði.
Aðalviðfangsefni þessara funda var endur-
skipulagning Fínullar hf., sem lauk með stofnun nýs hlutafélágs um
reksturinn og flutningi verksmiðjunnar til Borgarness.
Eru nokkrar vonir bundnar við hið nýja fyrirtæki, enda er framtíð
loðkanínuræktar í landinu undir því komin, hvernig til tekst. Ekki eru menn
á einu máli um, hvort rétt hafi verið staðið að eignaskiptum Fínullar h.f., og
hvort hagsmunir kanínubænda hafi verið nógu vel tryggðir.
Eins og fram kemur í síðustu ársskýrslu, var ákveðið að koma á
námskeiði á Hvanneyri í úrvinnslu á kanínufiðu að norskri fyrirmynd. Nær
öll kanínufiða í Noregi er markaðssett með heimilisiðnaði, og gefst það vel.
Ég vann að skipulagi og undirbúningi slíks námskeiðs, sem haldið var að
Hvanneyri að tilhlutan Bændaskólans og Búnaðarfélags Islands, dagana
7.-11. marss.l. Þátttakendur voru 15 víðsvegarað aflandinu. Leiðbeinend-
ur voru frá Noregi (4) og Danmörku (1), en jafnframt námskeiðinu var
haldin norræn ráðstefna um loðkanínurækt og stöðu hennar á Norðurlönd-
um. Námskeið þetta tókst mjög vel, og var áhugi þátttakenda mikill. í
framhaldi af námskeiði þessu hafa starfað vinnuhópar bæði á Hvanneyri,
Norðurlandi (Eyjafirði og S.-Þing.) og á Suðurlandi og námskeið verið
haldin. Mikill áhugi virðist vera á heimilisiðnaði úr kanínufiðu, og hafa
kanínubændur selt nokkuð af fiðu til þessarar starfsemi. Einnig hafa
nokkrir fengið sér loðkanínur til að framleiða hráefni til eigin nota.
96