Búnaðarrit - 01.01.1992, Blaðsíða 145
fyrirbyggja, að ný eða endurtekin vandamál eigi sér stað. Tekið var upp
samstarf við nokkra bændur um skipulag á jörðum þeirra til hrossabeitar
svo og Ræktunarsamband Norðurlands, en þar er búið að koma upp
svokölluðu landupplýsingakerfi. Það er tölvuunnið og auðveldar mjög alla
skráningu gagna og skipulagsvinnu. Fengnar voru loftmyndir af viðkorn-
andi jörðum og einföld kort teiknuð. Síðan var farið sameiginlega yfir
gróðurfar jarðanna og gerðar tillögur um landbætur og æskilegt skipulag á
nýtingu þeirra, m.a. með skipulagningu í beitarhólf. Verkefni þetta byrjaði
smátt, nánast í tilraunaskyni, en í raun eru slík vinnubrögð forsenda þess að
geta samræmt búskap og landgæði. Landgræðslan stefnir að því að hafa
forgöngu um slíka skipulagsvinnu víðar um land á næstu árum.
Lokaord. Það hefur viljað gleymast, eða ekki þótt fréttnæmt, að mikið
hefur áunnizt frá því, er skipulegt landgræðslustarf hófst hér á landi fyrir
rúmum 80 árum. Þannig hefur gróður víða numið land og verið í framför á
láglendi, sérstaklega á Suður- og Suðausturlandi. Þessu er vert að halda á
lofti, þegar rætt er um landgræðslu, því að í því felst hvatning og fyrirheit
um, að hægt sé að gera enn betur.
Aðaláherzla Iandgræðslustarfsins verður sem fyrr lögð á stöðvun jarð-
vegs- og gróðureyðingar. Veita þarf miklu meira fjármagni til þess en gert
hefur verið hingað til. Það veltur því á miklu, að vel takist til um að afla
skilnings og tiltrúar almennings á því, sem verið er að gera. í stefnu og
starfsáætlun ríkisstjórnar, sem birt var á árinu, varstaðfest ályktun Alþingis
um stöðvun hraðfara gróðurs- og jarðvegseyðingar fyrir næstu aldamót.
Við erum hins vegar að vinna að langtíma verkefni, og þó að stórkostlegt
átak verði gert fyrir tilstyrk nýrrar landgræðsluáætlunar í stöðvun eyðingar
fyrir árið 2000, þá munu líða áratugir eða jafnvel aldir, áður en við höfum
endurheimt fyrri landgæði. Verulegur árangur í landgræðslu næst ekki nema
öll þjóðin takist sameiginlega á við vandann.
Ég vil að lokum þakka bændum og öðrum samstarfsmönnum ánægjulegt
samstarf á liðnum árum.
143
L