Búnaðarrit - 01.01.1992, Page 225
hringskyrfi hafi verið að ræða, og seint í nóvember 1987 var stúlkan enn
ekki laus við ákomur þessar.
Með hliðsjón af því að stúlka þessi vann fjósaverk á Mið-Grund og þar
bar fyrst á hringskyrfi í kúnum, sem hún mjólkaði, verður að telja vafalítið
að gripirnir hafi smitast af þessari sænsku stúiku. Bóndinn á Mið-Grund og
dóttir hans hafi síðan smitast af kúnum.
Dreifíng sjúkdómsins milli bæja
Bærinn Mið-Grund er í svonefndu Holtshverfi. Bar er þéttbýlt, og eru
næstu bæir Syðsta-Grund, Efsta-Grund, Holt, Indriðakot, Björnskot,
Ormskot og Vallnatún.
Bóndinn á Mið-Grund hafði einnig ábúð á Syðstu-Grund, þar sem
nautgripir hans voru geymdir. í Björnskoti, sem ekki er í ábúð, voru hafðir
kálfar og geldneyti á sumarbeit. Gripir þessir voru frá Ysta-Skála. Þegar
farið var að kanna samgang gripa kring um Syðstu-Grund, kom í ljós, að
girðingar voru ekki traustar, svo að nokkur samgangur hafði verið sumarið
1987 milli gripa frá Syðstu-Grund og nágrannabæja og þá einkum við
geldneyti og kálfa, sem geymdir voru í Björnskoti.
Líklegast var talið aö sjúkdómurinn hafi breiðst út við samgang nautgripa
sumarið 1987 við smitaða gripi frá Syðstu-Grund, en þar varð fyrst vart við
skurfur á kúm í ágústmánuði. Þegar gripir þessir höfðu verið teknir á húsog
farið var að klippa þá seint í október, kom í ljós að útbrot voru orðin talsvert
útbreidd á kúnum. Nautgripir á þessum bæ voru nær 100 alls og í janúar
1988 höfðu útbrot sést á u.þ.b. 90 þeirra.
í nóvemberlok fannst hringskyrfi í geldneytum á Ysta-Skála, en þau
höfðu verið á sumarbeit á eyðibýlinu Björnskoti og komist þar í snertingu
við gripi frá Syðstu- Grund. Var geldneytum þessum lógað í von um að
sjúkdómurinn bærist ekki í mjólkurkýr á bænum. Sú von brást þó.
í mars 1988 kom hringskyrfi upp í nautgripum á bæjunum Efstu-Grund
og Indriðakoti. Var talið líklegast að veikin hefði leynst þar í gripum, sem
komist hefðu í snertingu við smitaða gripi sumarið áður, en ekki voru allir
samdóma um það.
í þeim fjósum, þar sem húðsjúkdómur þessi kom upp, virtust allir gripir
að kalla taka veikina. Þó voru fáeinir gripir, sem aldrei sá nein útbrot á,
jafnvel þótt reynt væri að sýkja þá.
í Indriðakoti voru kálfar hafðir sér í húsi og smituðst þeir ekki, vegna
aðgæslu og að árvekni húsráðenda.
Hringskyrfi var staðfest á sex bæjum alls í Vestur-Eyjafjallasveit, þ.e.
Syðstu-Grund, Mið-Grund, Efstu-Grund, Björnskoti, Indriðakoti og Ysta-
Skála.
Á þessum bæjum voru hátt á þriðja hundrað nautgripir. Nær allir þessir
223