Morgunn - 01.12.1926, Blaðsíða 13
MORGUNN
123
það mætti fá lækningu þar í augsýn safnaðarins. Að bæna-
gjörðinni lokinni, sagði hún barninu að sleppa hækjunum og
ganga. Barnið var hikandi fyrst, eins og það vissi ekki, livað-
an á sig stæði veðrið og þyrði þetta ekki. En það hlýddi og
geklc hækjulaust og óhalt fram kirkjuna. Sögumaður okkar
vissi ekki um það, hvort batinn liefði haldið áfram.
Iíina söguna sagði okkur íslenzk kona, sem sjálf liafði
fengið lækningu. Hún hafði átt við langvint heilsuleysi að
stríða og enga bót getað fengið. Maðurinn hennar leitaði fyrir
hennar hönd til þessa kvenprests, og svo talaðist til milli þeirra,
að hún skylcii, ásamt söfnuðinum, biðja fyrir íslenzku kon-
unni í kirkjunni. Sjúklingurinn lá heima í rúini sínu. Rétl um
það leyti, sem bænagjörðin fór fram, eða heldur á eftir, fanst
sjúklingnum líkast því sem farið væri að rigna yfir sig í
rúminu. Og upp frá því var heilsan komin. Sennilega hefir
það hjálpað batanum, að sjúka konan er gædd sálrænum hæfi-
leikum í töluverðum mæli, og henni því veitt léttai-a að veita
áhrifunum viðtöku.
Það er nokkuð ljós vottur um sinnuleysið í veröldinni,
•að engin gangskör skuli vera að því gerð, að sanna þessar lækn-
ingar svo vel, að menn geti tekið þær fyllilega gildar, eða
þá komist á gagnstæða skoðun og fengið einhverja skynsam-
lega hugmynd um, í hverju misskilningurinn og villan sé fólg-
in. Þúsundir manna eru sannfærðar um, að stórmerkilegir við-
burðir gerist, viðburðir, sem óneitanlega eru mikilvægir fyrir
heill mannanna, og ólíklegt er, að slíkt geti farið fram áruin
■sanmn frammi fyrir mannfjölda, ef ekkert væri bak við það,
annað en hugarburður og vitleysa. En engir taka sér fyrir
hendur að rannsaka málið af neinni nákvæmni. Eg geri ráð
fyrir, að ýmsir af læknunum vonzkist. Eg býst líka við því,
að sumir prestarnir, sem ekki eru sammála þessum heittrúaða
kvenpresti í trúarskoðunum, ypti öxlum. Þar við situr. Engin
rannsókn fer fram og ekkert blað minnist á þetta. Iívernig á
að fara að því að vekja sannarlegan rannsóknarhug með
mönnunum?