Morgunn - 01.12.1926, Blaðsíða 61
MOKÖUNN
171
Tindnm ára. Eru nokkrar sannanir nú til, sem staðfesta þessar
frásögur ? Presturinn liélt jiví fram, að svo vœri. A síöasta
mannsaldri liafa sannanir komið fram. Yér getum nú bent
nákvæmlega á staðinn, þar sem krossfestingin gerðist.
Tæpa 200 metra frá Damaskus-hliðinu í Jerúsalem, og
innan 50 metra frá ])jóðvegimim, var lágur hóll, og fyrir fram-
an hann var slétt, hálfhi-ingmyndað svæði. Framan við þenn-
an lága hól var klettur, og út úr miðjuin klettinum stóð fram
steinn, fjörutíu fet á hæð, og á honum sáust eins og augna-
tóftir, nasir og munnur; þetta var alveg eins og risavaxin
liauskúpa. Þetta var staðurinn, „sem kallaður er Hauskúpa“ í
23. kap. Lúkasar-guðspjalls. Hauskúpan glottir enn í dag
framan í þá, sem fram hjá fara, og sýnir, svo að ekki er
hægt um að villast, nákvæmlega staðinn, jjar sem hinn mikli
harmleikur veraldarinnar gerðist, og hrópar til allra sjáandi
manna: „Þetta er Golgata, staðurinn, sem kallaður var Iíaus-
kúpa.“
Gordon hershöfðingja fanst svo mikið til um Jjennan stað,
að hann gerði rannsóknir fram með klettinum, til Jjess að
leita að gröfinni, sem Nýja Testamentið segir, að hafi verið
þar nærri, sem hann hafði verið krossfestur, og liann fann
dyrnar að gröfinni, sem lmlin liafði verið öldum saman, „fimm
fet niðri í jörðinni, innan 100 metra frá Hauskúpunni.11 I
gröfinni er enn grópið inn í klettinn, þar sem stóra steininum
var velt inn til þess að lolca grafardyrunum (Mark. XVI,3),
og ]>ar eru tvö sæti, annað við liöfðalagið og hitt fótamegin,
þar sem líkaminn lá. Engin önnur gröf þar í grendinni hefir
þessi einkenni, og þetta, ásamt þeirri staðreynd, að gröfin er
nálægt „Hauskúpunni“, tekur af öll tvímæli um, að þetta er
gröf Krists. Með þessum hætti hefir guð séð fyrir því, að þessi
ltynslóð hefir fengið frásögn Nýja Testamentisins staðfesta.
En í þessari frásögn er líka sagt frá því, að Kristur liafi
birzt í líkama, sem farið hafi verið liöndum um, líkama, sem
hafi talað, neytt matar, og samt horfið út í loftið. Er líka unt
að fá þessa staðhæfing staðfesta? Já, sagði Tveedale prestur.