Morgunn - 01.12.1926, Blaðsíða 32
142
MOBGUNN
eru landamæri hans heims, og liann hefir lifað fyrir innau
þau landamæri eins og kónguló í vef sínum og mist alt sam-
band við heiminn fyrir utan. Hann hefir engan skilning 4
því, að það er eitthvað í eðli hlutanna, sem ætti að koma hon-
um til þess að segja: „Bg þori það ekki,“ eitthvað, sem ekki
lætur að vilja nokkurs manns, eitthvað, sem enginn maður
getur sveigt sér sjálfum til gagns, eitthvað, sem engum samn-
ingum verður við komið, né það að vettugi virt; óbreytanlegt
og ólijákvæmilegt vald, sem heldur sérhverjum manni að ein-
hverju leyti fjötruðum, vald, sem annaðhvort verður til þess
að auka afl mannsins og stækka hann á allar lundir, eða vofir
yfir honum eins og aðalhætta lífs hans — réttlætislögmálið,
siðalögmál alheimsins, sem skapað er og stjórnað af Guði.
Bn þá blasir við okkur hin algjörða mótsetning Ileródes-
ar og alls þess, sem liann táknar, þar sem fólkið er, sem situr
heima hjá einum vini fangans og biðst fyrir. Hvað táknar
sá liópur og sú atliöfn? Öllum er það ljóst, að Pétur er í
ramgjörðri gæzlu og því fer svo fjarri, að þau geti liaft nokk-
ur álirif á það, hvernig fyrir lionum fer, að þau gætu eliki
einu sinni bjargað honum, þó að þau væru tífalt fleiri og þó
að þau væru öll hinir fræknustu hermenn. Það er ekki við'
Heródes einan að etja, heldur í raun og veru við sjálft róm-
verska valdið, sem að baki honum stendur. Og hér sitja nokk-
urir karlar og konur og biðja þess, að Pétur verði frelsaður..
Bg sagði áðan, að Ileródes minti á, eða væri fulltrúi þeirra,
sem sálmaskáldið nefnir heimskingja, er segi, að Guð sje ekki
til. Mundi eigi óviðkomandi inanni hafa fundist kristni hóp-
urinn í Jerúsalem iítið óheimskari, er hann truði því, að nokk-
ur sá máttur væri til, sem kynni að taka upp Péturs málstað
og frelsa hann úr hættunni? Táknar þessi hópur þarna ein-
ungis þá gömlu sögu, að „svo mæla börn sem vilja,“ að menn
telji sér með öðrum orðum einungis trú um það, að einhver
máttur geti heyrt bænir þeirra og geti hjálpað, af því að
örvæntingin og hræðslan reki þá til slíkrar trúar? Eða er trú
þeirra bygð á einhverjum veruleika? Sama spurningin verð-