Morgunn - 01.12.1926, Blaðsíða 104
214
M.ORG-UNN
Ritstjóra-rabb Morguns
um hitt og þetta.
Saga
spiritismans.
Nýlega er út komin á Englandi »Saga Spíri-
tismans« (History of Spiritualism) eftir Sir
Arthur Conan Doyle, mikil bók í tveim
bindum. Enn hefir hún ekki hingað komið, svo að mér sé
kunnugt, en af þeim ummælum enskra blaða, sem ég hefi
séð, má ráða það„ að bókin sé mjög merkileg, enda var
ekki við öðru að búast.
Læknablaðið »Lancet«, sem víst er talið með hinum
allra-fremstu þess konar tímarita í Norðurálfunni, er eitt
þeirra blaða, er eg hefi séð minnast á þessa bók, og ger-
ir það vingjarnlega. Það lætur þess getið, að ýmsar hlið-
ar á efni bókarinnar komi ekki læknisfræðinni við, en
segir svo:
»Vér verðum hér að líta á þessa bók, sem ritaða af
læknisfróðum manni og senda læknatímariti til umsagnar.
Rétt er að mæla með því að lesendur vorir komist sjálfir
að raun um það af bók Arthurs Conan Doyle, hvað dygg-
ur starfsmaður innan spíritismans, sem notið hefir þeirra
hlunninda að fá vísindalega mentun, getur sagt til með-
mæla þessari hreyfingu. Þó að inikilvægi hennar sé ekki
jafn-ógurlegt eins og vikið er að í formálanum, þá kemur
hún miklu róti á ímyndunarafl manna og hefir ef til vill
áhrif á líf mikils flokks meðal þjóðarinnar. Bókin er með
góðum myndum, einkum myndum af ágætum stuðnings-
mönnum hinnar spíritistisku kenningar og starfsemi«.
í köflum þeim, sem saman hafa verið tekn-
Prestar og jr 0g pýdcJir af »Tveim kunningjum« og
sálarrannsokn- prentagjr eru hér í heftinu, eru fólgnar al-
varlegar áminningar til prestanna. Upp-
haflega eru þær auðvitað stílaðar til brezkra presta. Þó að
fleiri prestar í Stórabretlandi en nokkuru öðru landi hafi