Morgunn - 01.12.1926, Blaðsíða 23
MORGUNN
133
töluvert merkilegan árangur. Mestur virðist árangurinn vera,
þegar hún er með systur sinni, sem áreiðanlega hefir mikinn
sálrænan kraft. Venjulega nota þær ouijaborð, en það skiftið,
sem eg ætla að segja ykkur frá, notuðu þær alment smáborð.
Þær sátu inni hjá þeirri konunni, sem eg sagði ykkur, að við
þektum vel, og voru að stafa sig áfram, eins og tíðkast við
borðtilraunir. Alt í einu leggur borðið af stað, en þær halda
áfram að styðja fingrunuin létt á það. Borðið fer út úr stof-
unni og fram í íorstofu. Þar kemur það að stiga, sem ligg-
ur upp á loftið. Því næst byrjar það að tylla einum eða tveim-
ur fótunum á neðsta stigaþrepið. Systrunum skilst, sem borð-
ið vilji upp stigann, og skilja ekkert í þessu. En þær láta
borðið ráða, hjálpa því ekkert, að öðru leyti en því, að þær
halda áfram að láta fingurna liggja á því, en aftra því ekki
heldur. Það pjakkar upp allan stigann. Þegar það er komið
upp á stigabrúnina, lieldur það áfram inn í baðherbergi, sem
er uppi á loftinu, fer inn eftir því öllu, og staðnæmist að
lokum þar út við glugga.
Enn hafa systurnar enga hugmynd um, liver það sé, sem
segist vera á ferðinni með borðið. Nú taka þær að spyrja um
það. Þá er stafað nafn á framliðnum lækni, sem ekki hafði
áður gert vart við sig hjá þeim. Þessi læknir hafði orðið bráð-
kvaddur í baðherbergi út við gluggann. Á þetta virðist liann
liafa verið að minna með öllu þessu ferðalagi sínu með borð-
ið. Húsfreyjan er heldur heilsulítil, enda orðin nolckuð roskin
kona. Iiún orðað það við þennan nýja gest sinn, að úr því
að hann sé nú til hennar koininn, þá líti liann eftir lieilsu
hennar. ilann lofar því.
Nú var það nokkuru eftir þetta, að atvik gerðist, sem
er alveg Idiðstætt ýmsum þeim sögum, sem sagðar iiafa verið
af vönduðu fólki nokkuð margar á síðustu árum hér á landi.
Konan varð sárlasin af verk í bakinu. Ilún var á fótum með
þessa tilkenning nokkura daga, en henni veitti það örðugt. Eitt
kvöldið versnaði verlcurinn að stórum mun, svo að hún gat
ekki sofnað. Hún lá viðþolslítil og vakandi til kl. 4 um nótt-
ina. Þá fann hún draga úr sér allan mátt og jafnframt fann