Morgunn - 01.12.1926, Page 42
152
MORGUNN
kyrkingi hin venjulega guðfræðiskensla rjetttrúnaðarins lileyp-
ir í sálina og hve hræðilega hún f jötrar hana, og hvílíkt heljar-
átak og kvalafult þai'f til þess að sprengja svo af sér fjötrana,
að maður fái notið í fullu frelsi skynsemis-hæfileika sinna og
andlegrar sjónar, sem Guð liefir gefið oss til að nota öðrum
til blessunar.
Bg man vel, hvernig mér leið, meðan á þessu stóð. Eg er
feginn að eg hefi lokið því að fullu hérnamegin. Það var
erfið barátta. Mér fanst eg vera líkur kjúklingi, sem er að
brjótast út úr strútsfugls-eggi — afbrigði og ótímaburður. Eg
hafði það af. En eg kom út sundurtættur og særður á mörgum
stöðum. Sárin eru nú gróin; en örin ber eg enn. Yér skulum
því reyna að hugsa um prestinn með vinsemd og um vesalings
prest-hrjáðu móðurina líka.
II.
Klerkdómurinn og lífið hinumcgin.
(Alit framliðins manns).
í sumar kom út dálítil bók á Englandi, sem í'ituð er ósjalf-
rátt og er öll lýsing á lífinu liinumegin eða hugleiðingar um
það.* I einum kaflanum er gerð grein fyrir því, hvernig fram-
liðnir menn skynji oss hér. Eins og mörgum var áður kunnugt,
er það íullyrt, að þeir geti ekki séð oss eins og vér hver annar.,.
nema þegar sérstaklega stendur á. Að jafnaði sjá þeir aðeins
andlega hlið vora. Þó getur það komið fyrir, að þeir, sem
skemst eru komnir áleiðis hinumegin og jarðbundnir eru, sjái
við og við inn í vorn lieim með líkum hætti og vér skynjum
hann. Hér fara á eftir í þýðingu fáeinar glefsur úr bókinni
og byrjum við þar sem verið er að lýsa þessu:
„Andlegur líkami margra manna er svo gagnsýrður af
jarðneskum efnum og nautnum, er hann fer um dauðans hlið,
að meira ber í bili á jarðskynjunarhæfileikanum en andlegrí
sjón. En þessi hæfileiki hverfur brátt og þeir missa máttinn
til að sjá jarðneskar sýnir.
*) A Heretic in Heaven, Hutehinson & Co. London.