Morgunn


Morgunn - 01.12.1926, Page 76

Morgunn - 01.12.1926, Page 76
186 MORGUNN hlutum. Trúin á þessar lækningar er orðin svo algeng staðreynd með þjóðinni, að full ástæða er til þess að gefa henni gætur, og helzt reyna að komast fyrir, á hverju hún er reist, ef þess er kostur. Ég spurði hana, hvort hún gæti skýrt mér nokkuð frá árangrinum af þessum miklu málaleitunum. Hún lét lítið af því, að hún gæti það, enda mun ekki annað fjær upplagi hennar en yfirlætið. Langfæstir láta hana nokkuð vita um árangurinn, en menn eru alt af að skrifa henni, að þeim sé kunnugt um, að fólk, sem þeir þekki, hafi fengið svo góða heilsubót fyrir hennar milligöngu, og þess vegna snúi þeir sér til hennar með sín mein. »Af þessu ræð ég« sagði stúlkan, »að árangurinn sé einhver. En ég er ekkert að fullyrða um það, og læt hvern hafa sína skoðun um það óáreittan«. Ég veitti því eftirtekt fyrir norðan, að jafnvel þeim mönnum, sem hafa mest á móti þessum lækningum, sem talið er að gerist fyrir milligöngu Margrétar, virðist ekki koma til hugar, að hún segi víss vitandi nokkurt orð ósatt um það, er henni finst fyrir sig bera. Þeir halda, að hún viti ekki annað, en að alt þetta sjái hún, en að alt sé það ímyndun, sem sé sprottin af einhverri veiklun. Hverjar hugmyndir sem annars kann að vera skynsamlegt að gera sér um þetta mál, virðist mér þessi veiklunar-tilgáta með öllu óaðgengileg. Margrét hefir langmestan hluta æfinnar verið ágætlega hraust. Og að hinu leytinu er kunnugt um dulskygna menn bæði hér á Iandi og úti um allan heim, sem engrar veiklunar kennir hjá. Ég átti nokkurt tal við M. Th. í þessari ferð minni um sýnir hennar, en konan mín þó miklu meira, því að hún dvaldist IV2 viku í Öxnafelli. Mest af því, sem hér fer á eftir, ritaði hún hjá sér, jafnóðum og Margrét eða móðir hennar sögðu henni það. Fáein atriði skrifaði ég sjálfur samstundis og ég heyrði þau. Þetta fyllir að nokkuru upp það, sem sagt var frá henni í Morgni fyrir tveimur árum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.