Morgunn - 01.12.1926, Síða 113
MORGUNN
223.
á frú Silbert, og gerðu henni svo tilfinnanlega mikið ilt,.
hafa orðið fyrir alvarlegri refsingu..
»Ritstjórinn, sem hleypti illmælinu af stokkunum, er nú
gjaldþrota og hefir orðið að fara burt úr Graz.
»Annar aðalmótstöðumaðurinn dó fyrir fáum mán-
uðum.
»Þriðji maðurinn, sem hafði fært blöðunum ósannar
fréttir af frú Silbert, hefir mist arðsama og virðulega stöðu..
»Fjórði maðurinn, sem átti mikinn þátt í hinni nafn-
kendu sögu um »sprengivélar-Ieikfangið«,. hefir verið eltur
af óláninu og iðrast þess nú sárt, að hann skuli hafa átt
nokkurn þátt í að brugga þetta illræði.
»Og um það leyti, sem þetta er ritað, hefir hönd for—
laganna gripið í fimta manninn, sem átti þátt í þessari nafn-
toguðu »afhjúpun«. Hann er nú kominn á höfuðið og hef-
ir mist allar sínar eigur.«
Lesendur Morguns, sem hafa nokkuð kynst skoðunum
minum á dulrænum efnum þessi ár, er tímaritinu hefir ver-
ið haldið úti, munu fara nærri um það, að eg ætla mér
ekki að fullyrða neitt um það, hvort þessar átakanlegu
ófarir mannanna standa í neinu sambandi við atferli þeirra
í garð frúarinnar. Víst er um það, að mörg níðingsverkin
eru framin í veröldinni, án þess að séð verði, að það hafi
nein eftirköst fyrir jarðneska gæfu þeirra, sem að þeim
eru valdir. En óhugsanlegt er það ekki, að einhver þau
öfl séu bak við tjaldið, sem hafi tilhneiging til þess að láta
menn fá makleg málagjöld þegar í þessum heimi. Ekki er
það heldur óhugsanlegt, að stundúm geti þessi öfl ekki
komið vilja sínum fram, en stundum eigi þau kost á því —
og að þeir, sem hafi viljað refsa fyrir meðferðina á frú
Silbert og það tjón, sem sálarrannsóknamálið varð fyrir
af því atferli, hafi séð sér leik á borði. Auðsjáanlega finst
Harry Price, sem ritar um þetta í »Journal«, það eiga veh
við, að menn, sem vilja beita ósanngirni og rangindum,.
taki þessa útreið Graz-mannanna sem bendingu.