Andvari - 01.01.2009, Síða 101
ANDVARI
SÁLFRÆÐI HANNESAR ÁRNASONAR PRESTASKÓLAKENNARA
99
sonar (1735-1808) prests að Mosfelli í Mosfellssveit og konu hans, Sigríðar
(1732-1821) Arnórsdóttur sýslumanns í Belgsholti, Jónssonar. Þóra var þriðja
af fjórum börnum þeirra hjóna sem upp komust. Eldri bræður hennar voru
sr. Arnór í Vatnsfirði, og sr. Auðunn á Stóru-Völlum. Yngri systir hennar,
Steinunn, átti Ingjald Þorkelsson að Suðurreykjum og Þerney. Faðir Þóru, sr.
Jón Hannesson, var rammur að afli og glímumaður góður, vel gáfaður, hag-
mæltur og bar skynbragð á lækningar.
Þóra var þrígift, fyrst átti hún Jóhann kennara Árnason biskups Þórarins-
sonar, en hann lést 1804. Eftir voveiflegt lát Árna, föður Hannesar, um vorið
1816, átti hún Björn nokkurn Teitsson.
Ur þessum hópi ættmanna er sr. Arnór Jónsson kunnastur, og þótti Hannesi
ætíð mest til hans koma. Hann var meðal fremstu skáldpresta síns tíma og
skildi eftir sig fjölda sálma og kvæða. Eftir í sálmabók er nú aðeins einn sálm-
ur, 460, „Til hafs sól hraðar sér“. Arnór var á yngri árum skrifari Skúla land-
fógeta Magnússonar og Ólafs stiftamtmanns Stefánssonar. Hann kenndi við
Reykjavíkurskóla en varð eftir vígslu prófastur Borgarfjarðarprófastsdæmis og
síðar Isafjarðarprófastsdæmis nyrðra. Arnóri er svo lýst hjá Páli Eggerti: „Hann
var skarpur maður, vel lærður, kenndi mörgum undir skóla, góður kennimaður,
en nokkuð fljótfær í embættisverkum. Hann var lágur vexti, en þrekvaxinn,
fjörmaður mikill, rammur að afli og glímumaður ágætur. Búmaður var hann
lítill og átti oftast erfiðan fjárhag.“ Af Arnóri er meðal annarra kominn stjórn-
málamaðurinn Hannibal Valdimarsson, en sonur hans er Arnór, prófessor
emeritus í heimspeki við Háskóla íslands og sálfræðingur.
Fyrrum tengdafaðir Þóru, móður Hannesar, var Árni Þórarinsson biskup
á Hólum 1784-1787. Hann var tengdur móðurafa Þóru, Arnóri sýslumanni
Jónssyni í Belgsholti, sem átti föðursystur hans, og hafði alist upp þar eftir
að hann missti föður sinn 10 ára að aldri. Þar voru því sterk fjölskyldutengsl
þrátt fyrir lát Jóhanns, fyrsta manns Þóru.
Hannes var því vel tengdur inn í efsta lag íslensks þjóðfélags þó að
auraráð hafi verið lítil. Að missa föður sinn aðeins sjö ára að aldri hefur án
efa markað líf hans. Fjölskyldan var ekki kynsæl, ekkert systkinanna eign-
aðist afkvæmi sem lifði þau. Bræður Hannesar voru settir til mennta, og
urðu sýslumenn. Jóhann (1806-1840) í Rangárvallasýslu og Þingeyjarsýslu
°g Arnór (1807-1859) í Eyjafjarðarsýslu og Þingeyjarsýslu. Jómfrú Sigríður
systir þeirra giftist aldrei.
Ævi og störf
í*ar eð efnahagur fjölskyldunnar að Belgsholti var bágborinn var yngsta syn-
mum ekki ætluð menntabrautin og Hannesi féll þungt að eiga ekki kost á