Andvari - 01.01.2009, Page 114
112
HANNES BJÖRNSSON
ANDVARI
loðhúfu á höfði, var í víðri kápu og loðstígvjelum utan yfir skónum, er hann fór út. Hann
var meðalmaður í lægra lagi, grannur og ofurlítið íboginn. Hann var kvikur á fæti og
smátrítlaði, er hann þurfti að flýta sjer. Nærsýnn var hann og bar því jafnan gleraugu;
hafði hann það til, er hann var á gangi, að skima í allar áttir undan gleraugunum; en er
hann sat og var að tala, þá ýmist reri hann eða neri saman höndum og gat þá stundum
iðað af ánægju og ákefð. Fátt var verulega frítt á manninum, nema augun, því þau voru
athugul og skír.126
Um miðja 20. öld var lítið til af frumheimildum frá árabilinu 1848-1880127
og vægi minninga Jóns Ólafssonar ritstjóra, sem voru endurútgefnar í mjög
útbreiddu riti,128 varð mjög mikið. Sögur hans um Hannes hafa verið teknar
trúanlegar og heimildir í svipuðum anda129 hafa þótt styðja þær. Þær heimildir
sem ekki eru á þann veg gleymast gjarnan. Sumar meta fræðimanninn mikils
en nær allir heimildarmenn aðrir en Jón Ólafsson leggja mikla áherslu á hvað
Hannes var einstaklega vandaður og hreinskiptinn maður. Þá benda styrkþeg-
ar hans víða á mikilvægi Hannesar fyrir menntun þjóðarinnar. Hann er til
dæmis einn þeirra sem Sigurður Nordal tileinkar rit sitt, íslenzka menningu.
Á 28 ára kennsluferli kenndi Hannes Árnason 112 prestum130 auk þeirra
lækna sem lærðu forspjallsvísindi hjá honum. í þeim hópi voru menn sem
höfðu góða tilfinningu fyrir heimspeki og nýttu sér þá þekkingu sem var að
finna hjá Hannesi. Margir þeirra urðu áhrifamenn og þjóðþrifamenn. Eftir
sinn dag „leiddi hann ljós yfir land“ með lærisveinum sínum, styrkþegum
legatsins, eins og Ágúst H. Bjarnason kemst svo fallega að orði.131
HEIMILDIR
Aðalgeir Kristjánsson, 1998: Breytingar í skólamálum á fyrri hluta 19. aldar. Studia Theologica
Islandica, 12, 59-77.
Aðalgeir Kristjánsson, 1999: Nú heilsar þér á Hafnarslóð. Reykjavík, Nýja bókafélagið.
August Bjarnason, 1933: Hóffdings Psykologiske Teori. Kaupmannahöfn, Levin &
Munksgaard.
Agúst H. Bjamason, 1904: Upphaf kristninnar og höfundur hennar Jesús Kristur. Reykjavík,
Sigfús Eymundsson.
Agúst H. Bjamason, 1905: Yfirlit yfir sögu mannsandans 1. Andatrúin og framþróun
trúarbragðanna. Reykjavík, Guðmundur Gamalíelsson.
Ágúst H. Bjamason, 1913: Um Hannes Árnason. Óðinn janúar 10 bl. VIII ár. 73-77.
Ágúst H. Bjarnason, 1915: Yfirlit yfir sögu mannsandans. Vesturlönd. Reykjavík, Sigurður
Kristjánsson.
Ármann Kristinsson, 1946: Forspjall. I Minningar úr menntaskóla, (Ritstj.) Ármann
Kristinsson og Friðrik Sigurbjömsson. Reykjavík, Ármann Kristinsson.
Ámi Björnsson, 1997: Konráð Maurer og Islendingar. Formáli að Konrad Maurer, Islandsferð
1858. Reykjavík, Ferðafélag íslands.