Andvari - 01.01.2009, Qupperneq 188
186
KRISTMUNDUR BJARNASON
ANDVARI
Emilía hafði næman móðurlegan skilning á brestum náungans og ríka þörf til
að bæta um með honum.
VIII
Ekki verður svo minnzt á starfsár Þóru Melsteð, að Páls sé að engu getið. Þau
Þóra voru barnlaus, sem fyrr segir, en af átta börnum Páls með fyrri konu
dóu fimm á barnsaldri. Páll sonur þeirra, er fæddist þrem vikum eftir brun-
ann á Brekku 1844, var tekinn í fóstur af Sviðholtshjónum, Birni yfirkennara
Gunnlaugssyni og Guðlaugu Aradóttur, unz hann hóf nám í lærða skólanum.
Hann þótti gott mannsefni, brautskráðist þaðan 1863 með bezta vitnisburði
og varð þá um sumarið heimiliskennari hjá síra Halldóri prófasti Jónssyni,
er farið hafði byggðum frá Glaumbæ í Skagafirði að Hofi í Vopnafirði. Þar
veiktist Páll snögglega og andaðist 1865, á 22. aldursári.60
A legg komust auk Páls: Sigríður, sem var krampaveik framan af ævi. og
andlega vanheil og Anna Sigríður, vel gefin stúlka til munns og handa. Ekki
lynti þeim Þóru og henni framan af, og kann það að hafa verið beggja sök.
Til meiri háttar árekstra mun ekki hafa komið, en Anna Sigríður ólst ekki
nema að nokkru leyti upp í föðurgarði. Hún hlaut góða menntun í uppvexti og
dvaldist síðar í Danmörku, að nokkru leyti á vegum Emilíu, svilkonu Páls, og
nam mjólkurfræði. Hún kenndi við Kvennaskólann á Laugalandi í Eyjafirði
1877-1879. Hún giftist æskuvini sínum Stefáni umboðsmanni Stephensen á
Akureyri, bróður Magnúsar landshöfðingja. Faðir þeirra var Magnús sýslu-
maður Stephensen í Vatnsdal, sonur Stefáns amtmanns á Hvítárvöllum og
fyrri konu hans, Mörtu Maríu Diðriksdóttur. Stefán og Anna Sigríður þóttu
mætishjón og gestrisin með afbrigðum. Þau voru barnlaus.61
Sigríður - sem jafnan var kölluð Sigga - gekk ekki heil til skógar, eins
og áður segir, vangefin að einhverju leyti og lítt vinnufær. Hún dvaldist
ýmist heima, hjá Thomsenshjónum á Bessastöðum eða Ingileifu Jónsdóttur,
stjúpu Páls, og nokkur sumur hjá síra Guðmundi E. Johnsen, sem hafði látið
Möðruvallaklaustursbrauð laust og fengið Arnarbæli í Ölfusi 1856.62 Talið
var, að Sigga hefði farið svona upp úr veikindum. Emilíu var afar annt um
hana og bað jafnan fyrir kveðju til hennar, þegar hún skrifaði. Ávallt fór vel
á með Þóru og Ingileifu. Þegar árin færðust yfir, greri um heilt með Þóru
og Önnu Sigríði. Þóra lét sér að minnsta kosti mjög annt um nám hennar og
greiddi götu hennar fjárhagslega eftir megni.
Engin ætt er frá Páli sagnfræðingi Melsteð; síðara hjónaband hans varð
barnlaust.63
Þóra Melsteð bar menntun kvenna mjög fyrir brjósti, sem fyrr er sagt, og
Páll engu síður. Hann vildi rétta hlut þeirra eins og föðurafi hans, Stefán