Hugur - 01.01.2007, Side 58

Hugur - 01.01.2007, Side 58
56 Stefdn Snœvarr þessari greiningu á aðrar geðshræringar. Getur stolt og reiði verið án upphafs, hátinds og eftirleiks? Geðshræringar hafa að minni hyggju frásagnarformgerð. Astæðan er sú að þær eru það sem þær eru í krafti þess að vera ferli með fléttu (plotti). Upphaf, hátind- ur og endalok eru meginþættir fléttunnar. Ekki er nóg með að geðshræringar hafi bæði formgerð sögu og myndhverfinga heldur eiga frásögur og myndhverfingar ýmislegt sameiginlegt. Ricœur segir að frásögur eigi m.a. það sameiginlegt með myndhverfingum að vera konstrúöl (aftur minni ég á að Ricœur notar ekki þetta orð). Ricœur segir berum orðum ,/lð sjá eitthvað sem eitthvað annað er hin sameiginlega sál myndhverfingarinnar og frásögunnar" („le voir comme... est l’áme commune á la métaphore et au récit'j (Ricœur 19840: 448). Við getum hugsað okkur að skáldsaga Louis-Ferdinands Céline Ferðin til nœturloka (Voyage au bout de la nuit) sýni okkur heiminn eins og hann væri helmyrkt hyldýpi. Líka má nota dæmi úr sagnfræði: Islandssagan, sögð með hefðbundnum hætti, gæti sýnt ferð Snorra Sturlusonar til Noregs árið 1218 sem upphafið að endalokum þjóðveldisins (bæði dæmin eru frá mér sjálfum kom- in). Ennfremur samþætta sögurnar innbyrðis ólík fyrirbæri, rétt eins og mynd- hverfingarnar. Réttara sagt fléttar sögufléttan þeim saman, hið ýmsasta er þrætt upp á söguþráðinn. Ætlanir ýmissra manna, allra handa atburðir o.s.frv. verða að einni heild í frásögunni (Ricoeur 19843: 68). Við þetta vil ég bæta að rétt eins og myndhverfingar og geðshræringar gera frásögur viss fyrirbæri áberandi meðan önnur falla í skuggann. Hugarástand Snorra skiptir til dæmis ekki miklu máli í sögunni um fall þjóðveldisins en þess lags ástand er mjög í fyrirrúmi í skáldsögu Célines. Reyndar mætast frásögur og myndhverfingar víðar en Ricœur hyggur. Ég tel að goðsögur séu gegnsýrðar af myndhverfingum. Hugsast gæti að slíkar sögur séu myndhverfingar sem hreyfast í frásögutíma. í goðsögu segir kannski að Þór hafi barið hamrinum í jörðina. Nærtækt er að líta á þennan sagnbút sem myndhverfða lýsingu á þrumuveðri. Túlka má goðsöguna um Persefónu með svipuðum hætti. Henni er gert að dvelja í Hades þann hluta ársins sem kornið er í líki fræs í moldu. Hún snýr aftur til móður sinnar gyðjunnar Demeter þegar fræin taka að spíra. Segja má að sagan sé eins konar myndhverfing fyrir tilveruhætti kornsins. Persefóna táknar kornið, árstíðarbundnar ferðir hennar milli heima hringrás þess. En segir þessi greining okkur eitthvað um geðshræringar? Heilmikið, að því gefnu að Solomon sé á réttu róli er hann segir geðshræringar vera goðsögur eða goðafræði sem samanstanda af myndhverfingum og ímyndum (Solomon 1976: 202-211 og víðar). Goðafræði eða goðsögur geðshræringanna samþætta og „dramatísera“ þá dóma sem byggðir eru inn í geðshræringarnar.19 Skyldleikinn við kenningu Ricœurs um samþættandi eðli frásagna og myndhverfinga ætti að vera ljós. 19 Ein af meginkenningum Solomons er sú að geðshræringar séu dómar. Ef við hötum persónu hljótum \nð að dæma hana norður og niður (Solomon 1976:185).
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.