Hugur - 01.01.2007, Side 65

Hugur - 01.01.2007, Side 65
Listin á tímum tækninnar 63 eins og þeir birtast, en reyndar ekki eins og þeir birtast einstaklingnum eða hinni persónulegu sýn, heldur almennri eða óeinstaklingsbundinni sjón. Ljósmynda- vélin sjálf er í þessum skilningi ópersónulegt auga sem sér veruleikann og býr til eftirmynd af honum. Kodak-vélin er myndlistarmaður nútímans. Þetta hefur í för með sér þær breytingar á skilyrðum listsköpunar að í stað þess að myndsköp- unartæknin sé á færi fárra útvalinna, sem afla sér kunnáttu og tækni með strangri og langri þjálfun, verður hún nú tækni sem hver sem er getur haft á valdi sínu. Tæknin fer frá því að vera á fárra færi yfir til fjöldans. Hver sem er getur nú búið til myndir; listamenn í hinum hefðbundna skilningi eru í rauninni úreltir: En hver bylting hefir átt sér stað innan þjóðfélagsins með þessum fram- förum, verður ljósast séð af því, að þar sem áður voru einkum gerðar andlitsmyndir af páfum, konungum, hertogum og hyski þeirra og oft af allmiklum vanefnum, þá getur nú hver daglaunapiltur eignast sæmilega Kodak-vél og tekið mjög fullkomnar myndir af stúlkunni sinni, bæði eins og hún lítur út í sunnudagakjólnum og öðruvísi. (176-177) Halldór tekur fyrr í ritgerðinni dæmi um það sem lesandinn getur skoðað sem átakanlegan misskilning listamanns á þessum nýju aðstæðum, þar sem lista- maðurinn leigir sér fyrirsætu, tekur síðan af henni „fjölda ljósmynda frá ýmsum hliðum, í einni stellingunni annari annkannalegri. Síðan ætlaði hann að velja þá stellinguna til málunar, sem bezt ljósmyndaðist“ (163). Eftirlíkingarkenningin gegnir ekki aðeins lykilhlutverki í greiningu Halldórs á þætti tækninnar í þróun listsköpunar í samtímanum, heldur er hún líka megin- forsendan fyrir samanburði Halldórs á stöðu ljósmyndarinnar í nútímanum við stöðu málverksins á fyrri öldum. Hér er það hugmyndin um sanngildi mynda sem er í fyrirrúmi. Eftirmyndin á að vera eins fullkomin og sönn eftirmynd fyrir- myndarinnar og mögulegt er. Samband eftirmyndarinnar og fyrirmyndarinnar er einhvers konar samsvörun: Eftirmyndin svarar í öllum atriðum til fyrirmyndar- innar. Þessi samsvörunarkenning er næsti bær við samsvörunarkenninguna um sannleikann. Þar sem eðli myndlistarinnar er eftirlíkingin og tilgangur hennar að gefa sem fullkomnasta mynd af viðfangsefni sínu, þá miða ljósmyndir af fólki að sama marki og andlitsmyndir Rembrandts á sínum tíma: Að gefa mynd af pers- ónunni eins og hún er. Halldór orðar það svo að ljósmyndirnar hafi sama sann- gildi og málverkin. I rauninni er markmið myndlistarinnar að kalla fram sömu hughrif hjá áhorfandanum og áhorfandinn yrði fyrir við að sjá og upplifa hlutinn sjálfan. Myndin er ekki bara eftirmynd veruleikans, hún er líka staðgengill hans. Þessi afstaða kemur skýrt fram í ummælum Halldórs um landslagsmyndir. Þær eru sem sé líka orðnar úreltar. En meginástæðan fyrir því að landslagsmyndir eru orðnar úreltar er ekki sú sem við gætum búist við, sem sé að ljósmyndavélin hafi leyst trönurnar, strigann og penslana af hólmi, þó að það sem gildir um portrett- myndir hljóti vissulega einnig að gilda um landslagsmyndir. Meginástæðan er sú að nú eigum við kost á því að upplifa hlutinn sjálfan í stað eftirmyndar hans. Með betri bflum er unnt að keyra upp í sveit og njóta landslagsins sjálfs í staðinn fyrir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221
Side 222
Side 223
Side 224
Side 225
Side 226
Side 227
Side 228

x

Hugur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.