Hugur - 01.01.2007, Page 90

Hugur - 01.01.2007, Page 90
88 Kristján Kristjánsson hyggjii. Þetta er hárrétt. Ég hefði raunar ekki reiðst Jóni þótt hann hefði viðhaft um mig skammyrði Þórbergs um aðferð Laxness: „HriflingabjargastíU". Ég sæki þannig jafnt í smiðju Aristótelesar og Mills, án þess að gera mér annanhvorn þeirra að óskeikulu kennivaldi, og leita meira að segja í Hriflingabjörg jafn ólíkra hugsuða og Humes, Nietzsches eða Marx ef ég tel mig hafa einhvers góðs þangað að vitja. Jón er ekki eins næmur á rætur þess heimspekilega ritstils sem ég hef einatt beitt í skrifum á íslensku. Jóni þykir hann einkennast af því að ég tjái mig jafnan sem eindreginn talsmann einhvers viðhorfs og reyni svo að útiloka önnur með því að „lemja“ á þeim. Honum þykir þessi „heimspekilega einsýni" fremur „hvimleið og gagnslítiT' (s. 245) fyrir þann sem hefúr hug á að öðlast dýpri sýn á viðfangs- efnin. Jón hefði mátt gefa því gaum að flest skrif mín á íslensku eru samin fyrir (mis-)upplýstan almenning og nemendur. Reynslan segir mér að hugsun slíkra um heimspekileg málefni, sem ef til vill hefur ekki borið fyrir eyru þeirra eða augu áður, skýrist best í því neistaflugi sem skapast þegar öndverðum kostum lýstur saman. Ég hef því hyllst til að mála þá kosti sem í boði eru nokkuð skærum litum - og jafnvel leyft mér vissar galsaöfgar - til að gefa fólki skýrt val um að vera með sjónarmiði mínu eða móti. Þessi stílsmáti á mun síður við í samræðum við aðra heimspekinga, enda ætti Jón að sjá honum minni stað í skrifum mínum á ensku - og raunar í þeim ritgerðum íslenskum sem ég hef lagt mestan fræði- legan metnað í, svo sem um stórmennsku, geðshræringar og lífsleikni. 3-2 Martha Nussbaum fúrðar sig í nýlegri grein á því andvaraleysi sem einkenni við- horf nútímaheimspekinga til barna og siðferðilegs uppeldis þeirra.34 Eftir að hafa sótt metnaðarfull ársþing menntaheimspekinga í Bretlandi í nokkur ár hef ég áttað mig á því hve mjög rannsóknir þeirra eru vanmetnar; „alvöruheimspek- ingar“ virða þá naumast viðlits. Því miður ber nokkuð á þessu viðhorfi, vitandi eða óafvitandi, í grein Jóns. Hann telur til dæmis að aðeins tvær ritgerða minna í Mannkostum teljist vera „eiginlegar fræðigreinar" (s. 243). Hann sleppir þar rit- gerðinni um „Lífsleikni í skólum" þar sem ég set fram, að ég tel, nokkuð frumlega, fræðilega flokkun á kenningum síðustu ára um siðferðiskennslu og ver eina þeirra fyrir árásum. A öðrum stað efast hann stórlega um að það sé hlutverk siðfræðinga að kenna ungu fólki að reiðast rétt eða hjálpa fólki almennt að veita tilfinningum sínum rétta stefnu. Sé þetta satt er bróðurparturinn af öllu sem ég hef skrifað um siðferðileg efni á alþjóðlegum vettvangi síðasta áratuginn vegið fyrirfram og létt- vægt fúndið - sem og raunar stór hluti af siðfræði Aristótelesar - enda hefúr það að mestu snúist um siðlegt mat tilfinninga og eðli góðs tilfinningauppeldis. Jón er hrifinn af greiningu minni á hugtökum á borð við stórmennsku en telur að greiningin breytist í „martröð" (s. 248) þegar ég reyni að breyta niðurstöðum 34 „Political Soul-Making and the Immincnt Demise of Liberal Education", Joumal of Social Pbilosopby, 37 (2006), einkum s. 311.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186
Page 187
Page 188
Page 189
Page 190
Page 191
Page 192
Page 193
Page 194
Page 195
Page 196
Page 197
Page 198
Page 199
Page 200
Page 201
Page 202
Page 203
Page 204
Page 205
Page 206
Page 207
Page 208
Page 209
Page 210
Page 211
Page 212
Page 213
Page 214
Page 215
Page 216
Page 217
Page 218
Page 219
Page 220
Page 221
Page 222
Page 223
Page 224
Page 225
Page 226
Page 227
Page 228

x

Hugur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur
https://timarit.is/publication/603

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.