Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2005, Síða 37
BLÁIR MENN OG EYKONAN ÍSLAND
bar í Asíu.61 Hann fjallar einnig um stúlkur frá Suður-Afríku sem hann
telur að séu „Zulukaffar“ eins og það er orðað í textanum. Augljóst er á
lýsingu hans á atvinnuvegi þeirra að hér er um vændiskonur að ræða og
Sveinbjörn tekur ffam að „brjóst þeirra voru engu minni en á þeirri
fyrstu, sem jeg sá“.62 Líta má svo á að með því að leggja slíka áherslu á
lauslæti sé verið að undirstrika siðleysi og ffumstæði samfélaga þessara
kvenna en jafnframt vilja þeirra til að gefa sig á vald erlendum yfirráðum.
I riti Magnúsar Stephensen Skémmtileg Vina Gleði ífi'óðlegnm Samræð-
um og Ljóðmælum, sem skrifað er seint á 18. öld, minnist Magnús á afr-
ískar konnr.63 Sá texti er nokkuð annars eðlis en þeir sem fyrr voru
nefndir og leggur töluvert meiri áherslu á almerman ffóðleik (fyrirsögn
kaflans er Alann-breytingar). Þegar Magnús fjallar um „negra“, eins og
hann nefnir þá, lýsir hann konum á efdrfarandi hátt: „Brjóst qvenna, sem
átt hafa böm hánga ofan fyrir nafla, og á baki sínu láta þær bömin einatt
siúga, er þær fletta brjóstunum aptur á herðar sér.“64 Hér er ekki um jafn
gildishlaðna lýsingu að ræða og hjá Sveinbirni Egilssyni en Magnús
minnist þó einnig á lauslæti kvennanna (og reyndar einnig karla) þegar
hann segir „negra“ „fara á únga aldri að fást við qvennfólk, því skrifað er,
að vart finnist meðal þeirra ýngisstúlka, sem muni hvönær hún seinast
var píka, og í Egyptalandi í Afríka er í öllum þorpum við Nílar fliótið
fjöldi ýngisstúlkna ætlaður til kauplausra yndisleika ferðamönnum11.62
Suður-affíska Khoikhoi konan Sara Bartman kom til London árið
1810 til að taka þátt í furðusýningum margs konar. Ahugi evrópsks al-
mennings og menntamanna beindist fyrst og ff emst að kynfærum henn-
ar og hefur Bartman oft verið nefnd sem táknmynd fyrir viðhorf þessara
hópa til affískra kvenna yfirleitt.66 í fyTmefhdri bók gefur Magnús nokk-
uð ítarlega lýsingu á kynfæmm Khoikhoi kvenna og endurtekur hann í
lýsingu sinni nokkuð skýrlega ráðandi staðalmyndir í Evrópu af þeim.6
61 Sama rit, bls. 83.
62 Sama rit, bls. 84.
63 Magnús Stephensen, Minnisverð tíðindi frá árinu 1195 til vordaga 1198, ásamt ágripi
um þær nýjustu frönsku stjámarbyltingar, Leirárgörðum við Leirá: Prentuð af tilhlut-
an Hins Islenska Lands-Uppfræðingar Félags, 1796-1798, bls. 107.
64 Sama rit, bls. 103-104.
63 Sama rit, bls. 106.
66 Sander Gilman, „Black Bodies: White Bodies: Toward an Iconography of Female
Sexuality in Late Nineteenth Cenmry Art, Medicine and Literature,“ Race, Writing
and Dijference, ritstj. Henry Louis Gates, Jr., Chicago: University of Chicago Press,
1986, bls. 387-88; Strother, „Display of the Body Hottintot.“
35