Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2005, Blaðsíða 44
KRISTEST LOFTSDOTTIR
hverjar á áherslu á karlmenn og dyggðir þeirra sem tákngervingu Evr-
ópubúa og fólu því í sér að siðbetrun og framfarir væru karlmannleg fyr-
irbæri. Eins og Sigríður Matthíasdóttir bendir á var íslensk sjálfsmynd á
seinni hluta 19. aldar byggð á tilvísunum til þátta sem höfðu verið eign-
aðir karlmönnum, svo sem skynsemi og rökvísi, og hægt er að gera því
skóna að hin evrópska orðræða um Afríku hafi fallið vel að ímtmd karl-
mennsku á Islandi.
Hér má jafhframt spyrja hvaða þýðingu þær ímyndir Afríku sem birt-
ust í íslenskum ritum höfðu í stærra samhengi íslenskrar þjóðmálaum-
ræðu? Anne Brydon hefur bent á að fólk á jaðarsvæðum taki oft upp orð-
ræður ráðandi valdamiðju til að móta og útskýra eigin sjálfsmynd
(self-inscription), en tekur hana ekki nauðsynlega upp gagnrýnislaust held-
ur aðlagar eftdr eigin aðstæðttm.80 19. öldin var mikill umbrotatími í sögu
Islands. Þjóðernishyggja var augljóslega mikilvægur þáttur í félagslegu
og pólitísku umhverfi aldarinnar og endurspeglaðist meðal annars í stolti
yfir íslenskri menningu, áhyggjum yfir stöðu þjóðarinnar í samtíminum
og von um sjálfstæði landsins. Með því að endurtaka staðalmvmdir urn
Afríku má líta svo á að íslenskir pistlahöfundar Skímis hafi samsamað sig
Evrópu í andstöðu við þá sem þeir litu á sem villimenn. Margir textar
Skímis lögðu áherslu á hversu mikilvægan þátt Evrópubúar hefðu átt í að
færa Afríku siðbetrun og framfarir81 og má telja að textar eins og þeir
sem hér hefur verið fjallað um tengi framfarir við karlmennsku. Áhersla
þeirra á óttalausa, siðvædda karlmenn sem ryðja brautina fyrir framfarir,
er sérlega áhugaverð í ljósi þess að pistlaritarar Skímis voru karlmenn úr
efri stéttum íslensks samfélags. Abending Brydon dregur einnig athygh
að því að endurvinnsla hugmynda og texta úr evrópskum miðlum stóð
ekki utan við pólitískt samhengi tímans heldur er mikilvægt að velta fyr-
79 Kristín Loftsdóttir, „Hnattvæðing í ljósi menningar, hreyfanleika og nútímans," bls.
418.
80 Anne Brydon, „Inscriptions of Self: The Construction of Icelandic Landscape in
Nineteenth-Century British Travel Writíng,“ Ethnos, 60 (3-4): bls. 246. Islending-
ar virðast hafa fengið upplýsingar um erlendar fréttir úr margs konar heimildum ef
marka má upptalningu Jóns Stefánssonar á heimildum sem hann notar fyrir Skími
árið 1888. Hann telur upp bækur og tímarit á dönsku, ensku, þýsku og frönsku,
meðal annars Daily News, New York Herald, Berliner Tageblatt, Hamburger Fremden-
blatt, Neue Freie Presse, Verdens Gang, Váit Land, Encyclopædia Britannica, Nmvelle
Ge'ographie Universelle, Almanach de Gotha, 1887, Joimial des Economistes, 1887, Imp-
eiial Federation, 1887 og Statistical Abstract ofthe United Kingdom, 1886—87.
81 Sjá Kristín Loftsdóttir, „Tómið og myrkrið."
42