Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 112

Læknablaðið : fylgirit - 01.02.2001, Page 112
ÍÐORÐAPISTLAR LÆKNABLAÐSINS 1-130 Flekkblæðing, blæðingar Aðalsteinn Jens Loftsson, lyfjafræð- ingur, sendi tölvupóst fyrr í vetur og var þá að fást við þýðingu úr dönsku. Þar kom fyrir ekkymose sem er dregið af gríska heitinu ecchymosis. í læknisfræðiorðabókum Stedmans og Wileys kemur frant að ecchymosis tákni litar- breytingu í húð, fjólubláan blett sem stafi af blóð- leka úr æðum og sé stœrri en depilblœðing, petcchia. Ecchymosis er samselt úr þremur hlutum, forskeytinu ek- (út), nafnorðinu chymos (vökvi, safi) og viðskeytinu -osis (ástand, sjúklegt fyrirbæri). íð- orðasafn lækna tilgreinir tvö íslensk heiti: 1. flekk- blœðing, 2. blóðhlaup. íslensk læknisfræðiheiti Guð- mundar Hannessonar útskýra blóöhlaup þannig: blœðingar án áverka í og undir skinni, slímhúð eða úrhimnu, er líkjast marblettum. Urhimna er gamalt heiti á tunica serosa, sem nú nefnist hála eða hál- hjúpur. Lækningabók Jónassens frá 1884 gerir hins vegar ráð fyrir því að blóðhlaup komi úr rifnum æð- um við „röskun líkamsparta“ af völdum ytri áverka. Meiðslið, sem þá kemur fram, er nefnt mar. Jónassen notar ekki orðið blæðing í lýsingum sínum, en það orð kemur fyrir í bókinni Hjúkrun sjúkra eftir Stein- grím Matthíasson sem er frá 1923. Blæðingar I tilefni af þessari beiðni voru leituð uppi ýmis læknis- fræðileg heiti sem notuð hafa verið um blæðingar. Fyrst má nefna að íslenska samheitaorðabókin til- greinir samheitin: blœðing, blóðlát, blóðmissir, blóð- rás, blóðrennsli. Rétt er að vekja athygli á því að frá fornu fari var blóðrás notað um blóðmissi eða blóð- rennsli úr líkamanum, þó að nú sé það orð nær ein- göngu notað um hringrás blóðsins. Heitið blóöfall hefur einnig verið notað um blæðingu, fyrst og fremst innri blæðingu, en þó sérstaklega heilablæðingu. í íðorðasafni lækna má finna erlendu heitin angiostaxis (fossblæði), apoplexy (blóðfall, inn- blæðing), contusio (mar). diapedcsis (rauðkorna- útstreymi), ccchymosis (flekkblæðing, blóðhlaup), extravasation (utanæðablæðing, utanæðablóð), hematocele (blóðgúll), hematoma (margúll), hematorrhea (fossblæðing), hemorrhagia (blæð- Á erlendri grundu Það er sunnudagsmorgun f Suður- Svíþjóð. Kyrrðin ríkir og vissri angurværð bregður fyrir þegar litið er til veðurs að gömlum íslenskum sið. Himininn er grár, flatt landið ing), hemorrhea (blóðlituð útferð) og petechia (dílablæðing). I Islenskum læknisfræðiheitum Guðmundar Hannessonar fundust að auki suff- usio (stór blæðingarblettur undir húð, án greini- legra takmarka; marblettur) og sugillatio (mar- blettur, minni en suffusio). Úr öðrum íslenskum orðabókum voru tínd saman ýmis vel þekkt heiti á staðgreindum blæð- ingum: blóðfall, blóðgangur, blóöhnútur, blóð- hósti, blóðhráki, blóðhrækjur, blóðliður, blóð- ntiga, blóönasir, blóðspýja, blóðspýting, blóðspýt- ingur, blóðsveppur, blóðuppgangur og blóðþvag. Gaman væri að heyra af öðrum orðum sem læknar nota. Work-up Sigurður Þ. Guðmundsson, læknir, bar fram beiðni um íslenskun á samsetningunni work-up. íðorðasafn lækna tilgreinir work-up sem nafnorð, þaulskoðun, og work up sem sagnorð þaulskoða. Hvort tveggja er mikið notað í enskum læknisfræðitextum til að tákna skoðun og rannsókn á tilteknum sjúklingi. Sigurður sagðist ekki fella sig við að nota nafnorðið upp- vinnslu eða sögnina að vinna upp. Hann óskaði því eftir betri tillögum. Genbrigðalyf Asmundur Brekkan hringdi og var að leita að þægi- legu yfirheiti til að nota um þau lyf sem ætluð væru gegn sjúkdómsbreytingum er rekja mætti til gallaðra gena. Honum fannst lítið til þess koma að nefna þau genalyf. Eftir talsverðar umræður og umhugsun varð niðurstaðan sú að heitið genbrigðalyf kæmi vel til greina. Islensk orðabók Máls og menningar tilgreinir sögnina að brigða, breyta, rjúfa, svíkja, og nafnorðin brigð og brigði. svik, rof slit og stökkbreyting. Flæðistjóri Með tölvupósti var spurt hvort perfusionist mætti nefnast flæðistjóri. Spurningunni er hér með komið á framfæri. Lbl 1999; 85: 577 er sveipað móðu og hvorki sér til sjávar né fjalla. Hvar er góða veðrið sem lofað hafði verið? Litfögur blómin á brúnum sólpallinum tárast til samlætis og svartur köttur situr hryggur og starir út um gluggann. 112 113 112 Læknablaðið / FYLGIRIT 41 2001/87
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164

x

Læknablaðið : fylgirit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið : fylgirit
https://timarit.is/publication/991

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.