Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 15

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 15
Bréj Ingimar er talinn viss. Séra Kjartan, Ágúst í Birtingarholti og séra Ól- afur á Stóra-Núpi styðja hann. Með þeim er heil hersing smærri manna. Jón frá Kallaðarnesi er aldavinur Magnúsar Gíslasonar. Hann segir, að Magnús sé alls ekki jafnaðarmaður. Greinar þínar gegn Gísla og Kjerulf þykja meistaraverk hér syðra. Hafa margir fært þær í tal við mig. Sigurður Jónasson sagði, t. d.: „Þær eru afarljóst hugsaðar og setningarnar stuttar, án þess að vera tilgerðarlegar, eins og oft á sér stað hjá þeim sem iðka stuttar setningar.“ Sigurður, Hall- hjörn, Kristín, Erlendur og Felix - alt eru þetta orðnir þínir aðdáendur á akri listarinnar. Ekki er enn búið að reka mig frá Verzlunarskólanum. Skólinn var settur fyrir nokkrum dögum. Þar voru við staddir sumir svæsnustu kapitalistar bæj- arins, sköllóttir af afturhaldi. Þeir heilsuðu mér með handarbandi og stórri referentsíu. Annaðhvort þyki eg merkilegur kennari eða ekkert mark er tekið á mér í poletík. Skólastjóri hélt ræðu og lofaði mjög ósérplægni hinna sköll- óttu. Var sem drypi hunang af ásjónum hinna kennaranna. Eg einn sá í gegnum þennan endemis skollaleik og hló í hjarta mínu. Svo innlífaður er Lárus skepnan Jóhannesson braskarastéttinni, að í vetur kennir hann verzl- unarrétt við skólann fyrir ekki neitt. - I morgun kendi eg mun á hljóðstöf- um og samhlj óðendum í annari deildinni, en i-hljóðvörp í hinni. Alla leyndardóma þessara hluta skýri eg með myndum, sem eg teikna sjálfur á töfluna, og þykir það góð skemtun. Hálfdán Helgason segir, að eg spyrji meistaralega vel á prófum. Eftir tímana átti eg langt poletískt rifrildi við sjálfan skólastj órann. Þetta er nú maður, sem þorir að hafa sannfæringu. Sé ekki tekið mark á mér í poletík nú sem stendur, skal það verða gert síðar. Eg er nú byrjaður að studera poletík undir handleiðslu Hinriks. Hann er lærðastur í þeim fræðum á landi hér. Hann lét mig byrja á Geschichte der Nationalökonomie, tvö bindi, um 600 blaðsíður. (Eg hefi lesið stærri bækur). Eg er vísindamaður að eðlisfari og vil lesa systematiskt. Saga Unuhúss mælist hér vel fyrir. Erlendur er ánægður með hana. Kristín segir, að saga Gröndals hlikkni og fölni hjá þessu furðuverki. Hún leið í ómegin meðan eg las yfir henni áhrifamestu kaflana. Svo var henni dátt. Katrín Söbekk á að fá að lesa afrit af þessu í einrúmi. Katrín er lag- legt kvendi, gáfuð og lærð og ber með sér klassiskt aðalsmót. Hún er síles- andi. Hún les og talar ensku og þýzku. Eg gæti sennilega fengið hana, ef eg vildi. En frelsið er mér dýrmætara en drósar magi. - En sá hængur er nú á, að Una er orðin sljó og búin að tapa minni. Eg var að skrifa upp eftir 5
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.