Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Blaðsíða 86
Tímarit Máls og menningar
síðan fyrir að tapa því. Smám saman báru þessar tilraunir árangur. Það
var ekki nóg með að liatrið, sem vakið var upp gegn Gyðingunum, yrði til
að vernda valdhafana, heldur hjálpaði það einnig til að gera fámennum, sam-
vizkulausum hópi kleift að þrælbinda alla þýzku þjóðina.“
Allir vita hvað á eftir fór, útrýming 6 milljóna Gyðinga og siðan stofnun
Ísraelsríkis, er réttlætt var með því, að það ætti að verða Gyðingum trygg-
ing á ókomnum tímum fyrir því, að slíkir atburðir endurtækju sig ekki. Eg
hef áður rætt um það, að þetta réttlætisverk var grundvallað á nýju óréttlæti,
óréttlæti gagnvart íbúum Palestínu, er nú gengu inn í hlutverk hins landflótta
Gyðings — eftir að þeir urðu að flýja ættjörð sína, Palestínu, 1948.
Það var víðar ókyrrð í álfunni en í löndum Rússakeisara undir aldamótin
síðustu. Hinar illræmdu Gyðingaofsóknir — pogroms - eins og farið var að
kalla þær upp á rússnesku, en orðið merkir útrýming, virtust blossa upp á
ólíklegustu stöðum. í París urðu uppþot og óeirðir, er beindust gegn Gyðing-
um, en orsakir þeirra mátti rekja til Dreyfusmálsins alræmda. Gyðingar Aust-
ur-Evrópu áttu að því er virtist fárra annarra kosta völ en að flýj a land eða
bíða þess að verða brytjaðir niður af kósakkaliði keisarans. Þessi óveðurs-
bakki á austurlofti hins evrópska stjórnmálahiminshugnaðistekki veðurglögg-
um mönnum eins og Rothschild barón. Og Dreyfusmálið franska og eflirmál
þess urðu til þess að rumska við mörgum makráðum auðjöfri af Gyðingaætt
í Vestur-Evrópu. Það varð að sporna við því, að alda Gyðinga frá Póllandi
og Rússlandi tæki sér bólfestu á þeirra áhrifasvæði í Evrópu, slíkt gæti vakið
upp þann draug, sem erfitt yrði að kveða niður. Hagsmunum sínum, pólitísku
og efnahagslegu öryggi, sáu þessir visu Gyðingar því bezt borgið með því
að efla á alla lund þá hreyfingu, er Zionismi var kölluð, en hugmyndin að
henni hafði skotið rótum í kollinum á blaðamanninum Theodór Herzl frá
Budapest. Þessi hugmynd hins ungverska Gyðings var sett fram í bók hans
„Gyðingaríkið“, sem varð biblía Zionismans. Lausn Gyðingavandamálsins
er fólgin í því, að dómi Theodors Herzls og Zionista, að stofna sjálfstætt ríki
Gyðinga í Palestínu. Riki sem yrði eins og Herzl orðar það, útvörður evr-
ópskra áhrifa og menningar og pólitískt afl í Austurlöndum nær. Þetta var
hugmynd, sem vert var að leggja lið, að dómi Rothschilds baróns og annarra
peningafursta gyðinglegra í Vestur-Evrópu. Allra ráða var beitt til að finna
hinum landflótta trúbræðrum úr Rússlandi jörð til að ganga á, bara ef hún
væri ekki í Vestur-Evrópu; því var miklmn fjölda þessara Gyðinga beint til
N.-Ameríku og til Palestínu, þar sem Rothschild barón keypti miklar lendur
af stórjarðeigendum, er sátu að auði sínum í Damaskus eða Kairo, meðan
76