Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Blaðsíða 93
Af palestínskum sjónarhól
hans höfðu þegar látið lífið. Honura tókst að sleppa lifandi, en í fallinu
kom hann niður á annan mann, sem stóð undir húsveggnum, og braut
handleggi og fætur þessa manns. Maðurinn sem stökk út úr eldinum átti ekki
annarra kosta völ, samt sem áður var það hann sem varð valdur að óláni þess
sem beinbrotnaði. Ef báðir hegðuðu sér nú skynsamlega, þyrftu þeir ekki að
verða óvinir. Maðurinn sem stökk, hefði þá reynt að hugga og hressa hinn,
er hann var sjálfur búinn að ná sér eftir fallið, og hinn hefði sennilega skilið,
að hann var fórnarlamb aðstæðna, sem hvorugur þeirra réð. En reynið að
gera ykkur í hugarlund hvernig fer, ef báðir menninir koma heimskulega
fram. Slasaði maðurinn kennir hinum um ólán sitt og sver að hann skuli
einnig fá að þjást. Hinn, sem óttast að limlesti maðurinn komi fram hefnd-
um, áreitir hann, sparkar í hann og slær hann í hvert sinn sem fundum þeirra
ber saman. Sá sem sparkað er í, sver enn á ný að koma fram hefndum og
hlýtur enn refsingu. Bitur fjandskapur, sem í fyrstu reis vegna tilviljunar,
magnast og varpar skugga á líf mannanna beggja og eitrar hugskot þeirra.
Ég er viss um, að þið þekkið sjálfa ykkur - leifar evrópskra Gyðinga í
Israel — sem manninn er stökk út úr brennandi húsinu. Hinn maðurinn er
auðvitað tákn þeirrar milljónar Palestínu-Araba, sem misst hafa fósturjörð
sína og heimili. Þeir eru reiðir. Handan yfir landamærin líta þeir fæðingar-
staði sína, þeir ráðast að ykkur úr larmsátri og sverja hefndir. Þið sparkið
vægðarlaust; þið hafið sýnt að þá list kunnið þið mætavel. En hver er til-
gangur ykkar? Og hvað ber framtíðin í skauti?“ Þannig fórust Deutsch-
er orð.
Hvað ber framtíðin í skauti sér? Lausn þessara vandamála er ekki
fólgin í hryðjuverkum, hvorki Araha né ísraelsmanna. Þann sannleika gera
allir beztu menn þessara stríðandi aðila sér ljósan. Lausn bæði þessa vanda-
máls og annarra á alþjóðavettvangi er komin undir þróun mála almennt í ver-
öldinni í dag. Nái öfl friðar og samhjálpar yfirhöndinni, verður án efa stofn-
að nýtt ríki í Palestínu, þar sem bæði Arabar og Gyðingar mætast sem
bræður með gagnkvæmri virðingu hvor fyrir öðrum. Shk lausn væri mest
í anda hins sanna Gyðingdóms og raunar Islams líka. Verði hins vegar of-
stækisfullri þjóðrembingsstefnu og ofbeldisaðgerðum haldið áfram, getur
það leitt til þeirrar miklu Harmagedón er heimsslitum veldur.
83