Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Blaðsíða 97
Framtíð kapítalismans
alveg einstaklega villandi og allsendis ófæra til að gera grein fyrir ríkjandi
ástandi. Fyrst og fremst vegna þess, - ef menn gera sér grein fyrir þessu,
lel ég þeir hafi lykilinn að allri nútímasögu, - að það er fráleitt að imynda
sér, að um 1500 e. Kr. eða fyrir þann tíma hafi öll veröldin verið öfugþróuð,
eins og Þriðji heimurinn er nú. Víst má telja, að heimurinn hafi verið van-
þróaður, ef miðað er við nútímavísindi og tækniþekkingu, en hann var alls
ekki öfugþróaður, eins og Afríka, Rómanska Ameríka og meginhluti Asíu
eru í dag. Reyndar hefur í einn eða annan líma ríkt hámenning í öllum
heimshlutum, Norður-Ameríka er þó líklega undanskilin. Á ýmsum svæðum
þess hluta heimsins, sem nú er vanþróaður, varð efnahagsleg velgengni íbú-
anna svo mikil og þjóðmenning þeirra og hugmyndakerfi svo glæst í sniðum,
að það vakti undrun og aðdáun þá og gerir það að sumu leyti enn þann dag
í dag, jafnvel þótt tekið sé mið af nútímamenningu.
Það, sem í raun og veru gerðist, er allt annað en það, sem greina má á
vélrænni mynd af vanþróaðri veröld, breytingasnauðri unz lítill hluti hennar
skýzt allt í einu fram úr öðrum svæðum á þróunarbrautinni. Það, sem gerðist,
var síður en svo nein skrautsýning.
í upphafslöndum sínum hófst kapítalisminn frá fyrslu tíð til vegs með því
að undiroka, mergsjúga, arðræna og umbreyta því samfélagi, er ól hann.
Þetta leiddi til þess, að auðæfi fluttust frá jaðarsvæðum til miðlægra svæða,
og samhliða því var hið gamla samfélag jaðarsvæðanna brotið niður og því
breytt þannig, að það varð algjörlega háð miðlægu svæðunum. Þetta er
önnur hlið breytinganna. Hin hliðin sýnir, að auðæfi þau, sem rænt var og
kreist voru úr umhverfinu, þ. e. jaðarsvæðunum, urðu grundvöllur hraðfara
uppbyggingar á miðsvæðunum. Þetta voru hinar raunverulegu efnahagslegu
og félagslegu undirstöður ,,flugtaksins‘", og það er ákaflega vafasamt, hvort
nokkurt slíkt „flugtak“ hefði átt sér stað, ef gróðans af arðráni jaðarsvæð-
anna hefði ekki notið við.
Auðvitað hefur þetta verið endurtekið aftur og aftur og í sífellt stærra
mæli. Upphafsins er reyndar að leita talsvert löngu fyrir lok miðalda. Mér
lætur nærri að halda, að Oliver Cox hafi á rétlu að standa í bók sinni The
Foundation oj Capilalism (Grundvöllur kapítalismans), þar sem hann heldur
því fram, að fyrsta raunverulega kapítalíska ríkið hafi verið í Feneyjum á
7. og 8. öld. Þetta var riki, er þandist út yfir nærliggjandi héruð, beitti kúg-
unum og ránum, dró lil sín auðæfi og skóp borgaralega hámenningu. Sama
þróun varð svo í mörgum öðrum ítölskum borgríkjum og í Hansaborgum í
Norður-Evrópu. Að lokum, er leiðin lá opin til landa handan hafsins, -
87