Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Blaðsíða 76
Tímarit Máls og menningar
Hermdarverk Júða í Esterarbók eru vísast draumar ofsótts manns og
tálsýnir einar, sem enga stoð eiga sér í sögulegum veruleik þess löngu liðna
tíma - valdaskeiðs Ahasverusar, það er Xerxesar Persakonmigs - en það
sem mér finnst eftirtektarverðara við þessa frásögn er það, að hún gæti
með örlitlum orðalagsbreytingum verið lýsing á atferli þeirra Gyðinga á
okkar dögum, sem komið hafa á fót Ísraelsríki í Palestínu.
Við þurfum ekki annað en líta í dagblöðin eða fylgjast með fréttum út-
varpsins til að heyra dögum oftar greint frá hefndaraðgerðum - sem að vísu
eru oft kallaðar refsiaðgerðir - Israelsmanna gegn Palestínuskæruliðum eða
arabískum nágrönnum. Og þó fréttum við ef til vill minnst af því sem gerist.
ísraelsmenn virðast geta ráðið furðumiklu um það, hvaða fréttir birtast á
Vesturlöndum af ástandinu í Israel.
Enn í dag, löngu eftir að meiri hlutinn af innfæddum íbúmn landsins hefur
flúið heimkynni sín í Palestínu, eru Júðar Ísraelsríkis að refsa þeim áhrifa-
mönnum palestínskum, sem þráast við að yfirgefa heimkynni sín, með því að
reka þá úr landi sem þeir telja vera sér óþægan ljá í þúfu, yfir til Jórdaníu.
Þeirra á meðal er sjálfur borgarstjórinn í Jerúsalem, er fyrir skömmu var
vísað úr landi, fjöldi dómara, lögfræðinga, lækna og kennara.
Þúsundir arabiskra húsa hafa verið sprengd í loft upp, m. a. hafa heil
sveitaþorp verið jöfnuð við jörðu „af öryggisástæðum“ eins og það er kallað.
Sagt er að venju, að skæruliðar hafi leynzt þar, og ekki er þá þörf að bíða
rannsóknar málsins og enn síður dóms. Fangelsanir eru daglegt brauð, að-
standendur fá engar fregnir af þeim sem handteknir eru og mánuðum saman
er mönnmn haldið í fangelsi án þess mál þeirra komi fyrir dómstóla, en þegar
það er gert, er það venjulega ísraelskur herdómstóll, sem um málin fjallar.
Dómar eru miskunnarlitlir eða miskunnarlausir, sem ráða má af þvi, að 16
ára unglingar hafa verið dæmdir í allt að 25 ára fangavist fyrir yfirsjónir
sínar. Þá er það einnig opinbert leyndarmál að pyndingum er beitt gegn
föngum í fangelsum í ísrael í dag.
Fyrir nokkru bárust fréttir þess efnis að ísraelskar flugvélar hefðu verið
sendar í refsileiðangra til Damaskusborgar, þar sem tugþúsundir palestínskra
flóttamanna hírast í hreysum skammt utan borgarmarkanna. 50 manns féllu
í árásum þessum, flest konur og börn, að því er fregnir herma. Sannarlega
minnir allt þetta óhugnanlega á lýsingu Esterarbókar, þar sem segir, að Júðar
hafi farið með hatursmenn sína eftir geðþekkni sinni.
Við íslendingar erum víst svo miklir nútímamenn, að við látum okkur fátt
um finnast fréttir sem þessar - en er það raunverulega svo? Eru ekki sum
66