Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Blaðsíða 65

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Blaðsíða 65
Út dagbók (II) með geislabauginn um ennið meðan Ólafur Thórs hefur hann fyrir sokka- band. - Á himnum ríkir hið ósagða. Ó, Stína, komdu í vals. Ég er engill jök- ulsins, þar sem snjórinn er hvítur eins og skjall. Hitt er náttúrlega satt, við þurfum að eignast fleiri kindur. Upp upp mín sál. Ó hjú ó hæja. Klárir til með stagfokkuna elskurnar mínar. Ó hjú, ó hæja. - Og hann stökk af rúmi á rúm um þvera og endilanga deildina syngjandi grænlenzku svo það var enginn friður, en allt í háa lofti, þangað til hann fékk sprautu í rassinn og ég gat svæft hann í faðmi mér. Einn dag gerðist það svo allt í einu, að hann var farinn að spegla sig, það hafði hann aldrei gert áður, og hann var farinn að liggja hljóður í rúminu og líta í kringum sig. Hann var að breytast í annan mann sem ég þekkti ekki. - Engin hlaup Iengur. Engin skáldleg skringilegheit. Enginn Jónas og enginn Ólafur Thórs. Ekkert Ó hjú, ó hæja. Enginn jökull eða kindabú. En mér sýndist hann stundum eins og dálítið raunamæddur. Færi ég þá að tala við hann, varð hann aftur léttur í máli og við horfðum báðir í sömu áttina. Hann var að komast yfir sjúkdóminn. - Og hann fór að klæða sig og fara með mér í gönguferðir. Þunglyndis gætti ekki í fari hans. Og hann fór að vinna í garðinum einn síns liðs og virtist una sér hið bezta. - Svo var það, einhverju sinni, að ég gekk mig til hans og fór að spjalla við hann um daginn og veg- inn. Allt í einu segir hann og dálítillar depurðar kennir í röddinni: Viltu fyrirgefa mér Jón, hvað ég hef verið þér erfiður? Ég sagði: Svona máttu ekki tala. Þú varst veikur og enginn getur gert að því, þó hann veikist. Mér var falið að vera hjá þér veikum . . . Það er nú einusinni atvinna mín, að vera hjá því veika fólki sem hér er, og sé hér um einhverja fyrirgefning að ræða, ætli það sé þá ekki frekar ég sem ætti að biðjast afsökunar. - Annars fór nú allvel á með okkur, eða er það ekki? Hann brosti góðlátlega og sagðist kannski ekki muna svo glöggt hvernig þetta hefði verið, en áhugamál var það honum að ég segðist fyrirgefa. Ég bað hann blessaðan að hætta svona hug- leiðingum, og hann þagði við, og við tókum upp léttara tal. í svip hans sá ég nú ekkert sem benti til hugarangurs og við kvöddumst glaðlega. - Síðan liðu nokkrir dagar. Þá var það eitt kvöld, að hans var saknað á deildinni. Það var hafin leit í nálægð spítalans, en hún bar ekki árangur. Nema, morg- uninn næsta fannst hann hengdur niðri í Defensor. Svona getur verið erfitt að lesa fólk. Nei, allt þetta fullorðna fólk sem ég mæti á götunni, allt er það mér blá- ókunnugt eins og sú hók sem ég hef aldrei opnað. En það er skemmtilegt að mæta því þó smáfuglarnir séu kannski ennþá skemmtilegri. 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.