Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Blaðsíða 100
Tímarit Máls og menningar
við hlið'. Eða líttu á undurfagrar hæÖirnar, sera sjá má af húsþökunum í
Copacabana í Rio. Líttu ögn betur á þær, þá sérðu í hlíðum þeirra hinar
frægu „favelas“, einliver ömurlegustu fátækrahverfi í lieimi.
Þróun og öfugþróun eru samtvinnaðar hvor annarri. Þessi tvö fyrirbæri
eru háð hvort öðru, hið fyrra rökrétt afleiðing þess síðara og öfugt. Þannig
er saga kapítalismans frá upphafi, og hún endurtekur sig í öllum hugsanleg-
um tilfellum. Þetta eru tvær hliöar kapítalismans, og ekki er frekar unnt að
skilja þær að en samvaxna tvíbura. Þar til ykkur skilst þetta, og þar til þið
gerið þetta að hluta af daglegum hugsunarhætti ykkar, verðið þið aftur og
aftur leidd á villigötur vegna þess áróðurs, sem sífellt er beint að ykkur.
Með þessum áróðri er sífellt reynt að skilja sundur það, sem saman á, gerð
tilraun til að láta líta svo út, að þróun sé æskileg, en öfugþróun sé afleiðing
einhverra mistaka, og því er haldið fram, að þróun geti orðið án öfugþró-
unar. Þetta er ekki rétt, og þar til það hefur skilizt, getur ekki orðið um
neinar uppbyggilegar hugmyndir eða greiningu á framtíð kapítalismans að
ræða.
Ef þessa er gætt, sést auðveldlega, hversu óraunhæft og villandi það er
að skipta heiminum í tvennt, annars vegar þann hluta, er tók undir sig þró-
unarstökkið, og hins vegar þann hluta, er áfram bjó við vanþróun. Sögulegt
samhengi sýnir, að þróun annars hlutans var afleiðing og andhverfa öfug-
þróunar hins hlutans. Kapítalísk þróun, - ég endurtek þetta, því ef þið verðið
einhvers vísari við að hlusta á þetta erindi, vildi ég gjarnan, að einmitt
þetta atriði festist ykkur í huga, - kapítalísk þróun hefur óhj ákvæmilega í
för með sér þróun á einum stað en öfugþróun annars staðar. Þróuðu kapítal-
ísku löndin og öfugþróuðu löndin eru ekki tveir aðskildir heimar. Þau eru
út- og innhverfan á einum og sama heimi. Þess vegna er allt tal um Þriðja
heiminn í raun og veru villandi og ætti að falla niður. Ég tel þó, aö því verði
tæplega hætt, því að þetta heiti hefur unnið sér fastan sess í máli manna.
En við verðum stöðugt að hafa í huga, að þetta er aðeins þægilegur talsmáti,
en alls ekki lýsandi heiti á félagslegum og efnahagslegum raunveruleika.
Þegar mönnum hefur skilizt þetta grundvallarmynstur, þ. e. þróun-öfug-
þróun, tel ég, að flest annað, þar á meðal alla megindrætti og línur í núlíma-
sögu, megi skynja í samfelldu og auðskildu mynstri. Í fyrsta lagi verður
augljóst, hversu fráleitt er að búast við því eða að vona, að samband þróaðra
og öfugþróaðra landa geti leitt til þróunar í þeim síðarnefndu. Verzlun, fjár-
festing og opinberir styrkir eru einmitt þau tæki, er þróuðu löndin beita til
að arðræna öfugþróuöu löndin og halda þeim þannig á stigi öfugþróunar.
90