Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 20

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 20
Tímarit Máls og menningar Ánamaðkar inn um palla ungum bömum granda. En Guð' er uppi á Gleiðarhjalla í gríðarlegum vanda. I morgun komu stelpurnar litlu inn dauÖhræddar og hágrátandi. Þær höfðu þá sögu að segja, að Gleiðarhjalli ætti að hrynja yfir bæinn í dag. Anna Ólafs hafði sagt þeim það, „og hún má ekki ljúga í lítil börn.“ Eina ráðið til að komast undan grjótfluginu væri að standa úti hjá húsi frú Maríu í allan dag. Stelpurnar voru alveg óhuggandi. Þær voru svo sannfærðar um, að Gleiðarhjalli steindræpi hvert mannsbarn, sem ekki stæði úti hjá húsi frú Maríu. Þær þutu út aftur að vörmu spori með lífið í lúkunum. I allan dag hafa þær staðið úti hjá húsi frú Maríu og beðið þess með skelfingu, að Gleiðarhjalli hryndi þá og þegar yfir bæinn. I kvöld komu þær heim þreyttar og armæddar. Eg gat rekið úr þeim allan beyg við Gleiðarhj alla með þessum einföldu huggunarorðum: „Þegar Þórbergur fer burt úr Silfurgötu 7, hrynur Gleiðarhjalli yfir ísafjörð.“ „Þú verður að vera hér alt af,“ báðu þær grát- andi. Svona hafa allir tillrú til mín. Hér er hver dagur eins og reykelsisilmur og blómaangan. Klukkan hálf- elfefu á hverjum morgni vakna eg og hugsa 5 mínútur um velferð mann- kynsins. Síðan les eg eða tek á móti inspirationum til kl. 11. Þá klæði eg mig, þvæ mér og hefi æðra massasi. Að því loknu geng eg úti í 15 mínútur. Kl. 12 ét eg. Þá skrifa eg og tala við vinnukonuna til kl. 3. Þá drekk eg soðið vatn og ét brauð með. Skrifa síðan til kl. 4. Þá geng eg úti í 35 mínútur, fer í sjó, tek líkamsæfingar og höfuðnudd. Eg ætla að láta klippa mig á morgun. Síðan skrifa eg til kl. 7. Þá ét eg. Eftir það geng eg úti 15 mínútur. Á kvöld- in les eg eða skrifa eða frílysta mig. Þegar gestir eru, les eg upp úr ritum mínum eða hermi eftir. Þá eru og sagðar sögur. Skemtilegt? Ja, satans aare skemteligt. Nú hefi eg endurbætt stórum jólaræðu sr. Bjarna. Ritdómararnir mundu segja, að nú sé hún heilsteypt listaverk. Um tólfleytið þjóna eg hjón- unum til sængur og svæfi þau með háspekilegu svindilbraski. Síðan hátta eg og bið í 5 mínútur fyrir velferð mannkynsins. Þá slengi eg höfðinu á kodd- ann og les til kl. 2. Þá fer eg nú að reyna að sofna og læt hugann hvarfla yfir fjarlægar borgir og lönd, unz svefninn flytur mig í enn æðri heima. Þrisvar vakna eg, seilist undir rúmið og pissa í koppinn minn. Hann er blágrár með handarlialdi. Eftir það þukla eg á mér hátt og lágt, til þess að vita, hvort ekki séu neins staðar farin að vaxa út úr mér æxli. (Hvað er þetta? Hnútur 10
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.