Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 34

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1973, Page 34
Tímarit Máls og menningar telja varnarliðið j afnnauðsynlegt og hann telur nú? Forustusveit Sjálfstæðis- fiokksins er ekki sem geðslegastir bandamenn lýðræðissinnaðra þjóða, áhugi hennar á gróðaaðstöðu í sambandi við varnir landsins bendir ekki til mikilla heilinda gagnvart þeim, sem þeir telja bandamenn sína. Þeir virðast litlu vilja fórna af því, sem þeim er kærast, sem er gróðinn. Sá hugsunarháttur, að græða á bandamönnum sínum, er vægast sagt fremur lágkúrulegur. En þessi er afstaða tötraborgarans bæði hér og annars staðar í heiminum. Menntun og menning hafa löngum verið olnhogabörn Sj álfstæðisflokksins, þar til flokk- urinn sá fram á það skömmu eftir síðustu heimsstyrj öld, að við svo búið mátti ekki standa og stóð að stofnun bókafélags, sem skyldi verða flokknum flotholt á hafsjó menningar og mennta. Félag þetta skyldi gefa út rit, sem ekki væru flokknum né hagsmunum borgarastéttarinnar beint fjandsamleg. Tilraunir höfðu áður verið gerðar til þess að eigna Sjálfstæðisflokknum vissa höfunda og viss rit, aðallega í þeim tilgangi að vinna gegn róttækum skáldum og rithöfundum og þá einkum þeim, sem flokkurinn taldi stefnu sinni hættu- legastan, sem var um fjölda ára Halldór Laxness. En barátta flokksins og Morgunblaðsins gegn honum bar aldrei þann árangur, sem aðstandendur blaðs og flokks væntu. Reynt var að upphefja vissar skáldsögur sem þjóðlegar og réttar gegn óþjóðlegum ritum þessa höfundar, en allt það brölt kom fyrir lítið. Það virðist sem Sjálfstæðisflokksforustunni hafi þótt mælirinn fullur þegar Atómstöðin kom út, en sú skáldsaga er sannasta samtímalýsing áranna eftir síðari styrjöldina og þar var dregin upp mynd þeirra aðila, sem lögðu grundvöllinn að utanríkisstefnu íslands næstu tvo áratugi. Sjálfstæðisflokk- urinn reyndi að koma í veg fyrir að bók þessi yrði þýdd á erlendar tungur og sýndi fátt betur heimóttarhátt og kauðsku forustumannanna og vottaði jafnframt réttdæmi höfundarins. Menningarleg uppreisn borgarastéttarinnar og þá einnig Sjálfstæðisflokks- ins varð þó ekki sú upprisa, sem að var stefnt fyrir þá aðila. Aftur á móti hefur félag þetta gefið út ýmsar gagnlegar og þarfar bækur, án þess þó að finna megi áhrif þeirra í víkkaðri meðvitund og aukinni menningu íslenzkrar borgarastéttar og jafnvel þótt gefin væru út rit og bókmenntaverk, sem rituð voru á ritstjórnarskrifstofum Morgunblaðsins, höfðu þau ei að heldur nein áhrif í þá átt. Tilraunir flokksblaðanna í þessa átt hljóta alltaf að verða mjög takmarkaðar og tilburðir þeirra eru Sisyfusarraun, þegar bezt lætur, sökum þess að meðan tötraborgarar ráða Sjálfstæðisflokknum og blöðum hans stríðir öll menningarviðleitni gegn hagsmunum þeirra, og er þeim sjálfum því mjög hættuleg. Þetta má meðal annars marka af afstöðu íslenzkra náms- 24
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.